Sveitarfélagið Árborg semur um móttöku seyru
Sveitarfélagið Árborg og Umhverfis- og tæknisvið Uppsveita (UTU) hafa gert samkomulag um móttöku þess síðarnefnda á seyru sem til fellur frá hreinsistöðvum og úr rotþróm í Árborg.
Samningurinn er ótímabundin og felur í sér skuldbindingu UTU að taka á móti seyru úr hreinsistöðvum og rotþróm sem fellur til hjá Árborg. Um er að ræða áætlað meðalmagn á ári allt að 20.000 kg.
Seyran er síðan send í vinnslu á móttökustöð fyrir seyru sem er staðsett á Flúðum. Stöðin á Flúðum, sem er rekin af UTU, vinnur úr seyrunni sem er m.a. nýtt til uppgræðslu á ákveðnum svæðum í samstarfi við Land og skóga og Heilbrigðiseftirlit Suðurlands.
Það voru Bragi Bjarnason, bæjarstjóri Árborgar og Nanna Jónsdóttir, skrifstofustjóri UTU sem undirrituðu samninginn.