Sveitarfélagið Árborg semur við GTS ehf. um akstursþjónustu
Sveitarfélagið Árborg og GTS ehf. hafa undirritað nýjan þjónustusamning um akstursþjónustu fyrir sveitarfélagið að loknu útboðsferli. Samningurinn gildir til næstu fimm ára, með möguleika á framlengingu um allt að þrjú ár til viðbótar.
Fyrr á árinu auglýsti Árborg útboð á skólaakstri, frístundaakstri og akstri fyrir fatlað fólk. Að loknu mati á tilboðum reyndist tilboð GTS ehf. hagstæðast og því var gengið til samninga við fyrirtækið. Samningurinn var undirritaður þann 31. júlí síðastliðinn.
GTS ehf. hefur sinnt stærstum hluta akstursþjónustu fyrir Sveitarfélagið Árborg undanfarin sex ár og hefur samstarfið verið farsælt. Nýi samningurinn tryggir áframhaldandi þjónustu og styður við örugga og áreiðanlega akstursþjónustu fyrir íbúa sveitarfélagsins.
Það voru Bragi Bjarnason, bæjarstjóri Árborgar, og Tyrfingur Guðmundsson, framkvæmdastjóri GTS ehf., sem undirrituðu samninginn fyrir hönd sinna aðila.


