Sveitarfélagið og Hestamannafélagið Sleipnir endurnýja þjónustusamning
Sveitarfélagið Árborg og Hestamannafélagið Sleipnir hafa endurnýjað þjónustusamning sinn til fimm ára.
Það voru Bragi Bjarnason, bæjarstjóri Árborgar og Berglind Sveinsdóttir, formaður Sleipnis sem skrifuðu undir samninginn sem gildir út árið 2030.
Um er að ræða þjónustusamning sem felur m.a. í sér styrk til reksturs félagsins og framlags til barna- og unglingastarfs. Skrifað var undir samninginn á aðalfundi hestamannafélagsins þriðjudaginn 3. febrúar sl.



