Talning atkvæða vegna sveitarstjórnarkosninga í Sveitarfélaginu Árborg
Talning atkvæða vegna sveitarstjórnarkosninga í Sveitarfélaginu Árborg fer fram í íþróttahúsinu í Vallaskóla, Sólvöllum 2 á Selfossi á kjördag þann 14. maí 2022.
Talning hefst eftir lokun kjörstaða kl. 22:00, um leið og atkvæðakassar berast á talningarstað.
Almenningi gefst kostur á að vera viðstaddur talningu atkvæða á meðan húsrúm leyfir.
Áhorfendasvæði verður í stúku íþróttahússins, inngangur er frá Sólvöllum um aðalinngang.
Áhorfendur skulu hafa algjöra þögn á talningarstað til þess að trufla ekki störf talningarfólks.
Nánar um talningu atkvæða er fjallað í XV. kafla kosningalaga nr. 112/2021 og reglugerð nr. 431/2022 um talningu atkvæða.
Selfossi, 6. maí 2022
Yfirkjörstjórn Sveitarfélagsins Árborgar
Ingimundur Sigurmundsson
Steinunn Fjóla Sigurðardóttir
Steinunn Erla Kolbeinsdóttir