Þjónustusamningur við Hestamannafélagið Sleipni endurnýjaður
Sveitarfélagið Árborg og Hestamannafélagið Sleipnir hafa endurnýjað þjónustusamning sinn til eins árs.
Það voru Bragi Bjarnason, bæjarstjóri Árborgar og Berglind Sveinsdóttir, formaður Sleipnis sem skrifuðu undir samninginn sem gildir út árið 2025.
Um er að ræða þjónustusamning sem felur í sér styrk til reksturs félagsins og framlags til barna- og unglingastarfs. Einnig var gerður samningur um stuðning til reksturs félagshesthúss til næstu þriggja ára. Með verkefninu er börnum og unglingum sem eru að stíga sín fyrstu skref í hestaíþróttum gefinn kostur á að fá aðgang að hesti og aðstöðu og þau studd áfram í starfinu.