Þjónustusamningur við Ungmennafélagið Stokkseyri
Mikið er um að vera þessa dagana í undirskriftum þjónustusamninga en Sveitarfélagið Árborg og Umf. Stokkseyri skrifuðu á dögunum undir endurnýjun á þjónustusamningi sínum.
Það voru Bragi Bjarnason, bæjarstjóri Árborgar og Ingi Þór Jónsson, formaður Umf. Stokkseyri sem skrifuðu undir samninginn sem gildir út árið 2025.
Ungmennafélagið fær greiddan styrk til reksturs þess auk þess sem félagið tekur að sér hin ýmsu verkefni
Má þar nefna rekstur íþróttahússins á Stokkseyri auk umsjónar með knattspyrnuvöllunum á Eyrarbakka og Stokkseyri. Þá sér félagið áfram um Bryggjuhátíðina og ýmis verkefni í kringum jól og áramót.