Þrjú störf án staðsetningar
Samband íslenskra sveitarfélaga auglýsir nú laus til umsóknar þrjú störf án staðsetningar.
Um er að ræða tvö störf er snúa að stafrænni umbreytingu sveitarfélaga og starf forvarnarfulltrúa sveitarfélaga.
Við vekjum athygli á því að á vef Byggðastofnunar er yfirlit yfir skrifstofuaðstöðu fyrir þá sem þiggja störf án staðsetningar víðsvegar um landið. Sjá nánar um húsnæði fyrir störf án staðseningar.
Á Selfossi er boðið upp á aðstöðu í Fjölheimum. Sveitarfélagið Árborg mun fylgjast vel með framboði á slíku húsnæði og er fólk hvatt til að hafa samband við bæjarstjóra (gislihh@arborg.is) ef liðsinni vantar í þeim efnum.
Nánari upplýsingar um störfin má finna hér: https://www.samband.is/frettir/thrju-storf-an-stadsetningar/