Til allra verslunar- og þjónustufyrirtækja starfandi í sveitarfélaginu Árborg
Sveitarfélagið Árborg óskar eftir því að áhugasöm verslunar- og þjónustufyrirtæki starfandi í sveitarfélaginu Árborg sendi tilboð í gjafabréf vegna jólagjafa starfsmanna.
Hjá sveitarfélaginu starfa rúmlega 1000 starfsmenn á 37 vinnustöðum. Sveitarfélagið áskilur sér rétt til að velja tvö þeirra tilboða sem berast í verðfyrirspurninni út frá mati sveitarfélagsins á hagkvæmni gjafarinnar fyrir starfsmenn. Starfsmönnum mun gefast kostur á að velja milli þeirra tveggja tilboða sem verða fyrir valinu.
Skilyrði fyrir þátttöku:
Eingöngu er tekið við tilboðum í innpökkuð gjafabréf.
Skila þarf inn tilboðum fyrir 17. október 2025.
Eingöngu er tekið við tilboðum frá fyrirtækjum sem eru starfandi í Sveitarfélaginu Árborg
Fyrirkomulag:
Tilboðin má senda á netfangið mannaudsdeild@arborg.is fyrir 17. október 2025.
Sveitarfélagið greiðir 8.000 krónur fyrir hvert gjafabréf.
Þau fyrirtæki sem senda inn tilboð fá upplýsingar um hvort þeirra tilboð hafi verið valið eða ekki þann 24. október.
Fyrirtækin fá staðfestingu á fjölda gjafabréfa sem sveitarfélagið mun kaupa föstudaginn 7. nóvember.
Fyrirtækin skila gjafabréfunum mánudaginn 1. desember í Ráðhús Árborgar.
Með fyrirfram þökk,
Bragi Bjarnason bæjarstjóri