Tilkynning frá Selfossveitu
Vegna breytinga á stofnlögnum við Rauðholt verður heitavatnslaust í Heiðmörk, Þórsmörk og Austurvegi 65 þriðjudaginn 19.maí.
Aðgerðir hefjast kl. 15:00 og standa yfir fram eftir degi.
Reynt verður að flýta aðgerðum eins og hægt er. Ef einhver óþægindi verða vegna þessara aðgerða er beðist velvirðingar á því.
Kveðja,
Sigurður Þór Haraldsson | veitustjóri