Tilkynning frá Vatnsveitu Árborgar
Vegna breytinga á stofnlögnum við hringtorg Eyrarvegur/Suðurhólar verður kaldavatnslaust fimmtudaginn 18.júní á eftirtöldum stöðum: Eyrarbakki, Stokkseyri, fyrrum Sandvíkurhreppur, á Selfossi er það Álalækur og Víkurheiði.
Aðgerðir hefjast kl. 9:00 og standa yfir fram eftir degi. Reynt verður að flýta aðgerðum eins og hægt er. Ef einhver óþægindi verða er beðist velvirðingar á því.