Tilmæli vegna leikskólabarna til að tryggja sem best rekstur leikskóla
Tilmæli landlæknis eru á þá leið að „ef þú hefur einkenni sem gætu verið COVID-19 er ráðlagt að fara í PCR próf“
Við hvetjum foreldra því til að viðhafa slíka aðgæslu áður en komið er með börn á leikskóla. Hinsvegar dugir eitt PCR próf barninu allan þann tíma sem sama kvefið/veikindin halda áfram. Taki barnið svo veikindi á nýjan leik, eftir að fyrri veikindum er lokið, þá er sjálfsagt að fara aftur í PCR próf.
Þetta eru vinsamleg tilmæli sveitarfélagsins og gerð í því skyni að draga eins og frekast er unnt úr öllu raski á starfi leikskólanna. Eins og flestum ætti að vera orðið ljóst er okkur fátt eins mikilvægt og að rekstur leikskóla haldist óskertur.
Jafnframt bendum við á að foreldrar mega ekki fylgja börnum sínum á leikskóla ef þeir eru í einangrun eða sóttkví. T.d. ætti ekki fylgja barni á leikskóla ef viðkomandi er með einkenni á leið í sýnatöku, fyrr en niðurstaða liggur fyrir.
Það er á ábyrgð hvers og eins að fylgja þessum reglum og starfsfólk sveitarfélagsins getur ekki og mun ekki hafa eftirlit með því.