Tómstundaakstur skólaárið 2026/2027
Tómstundabíllinn ekur alla virka daga frá kl. 13:10-16:20 (sjá neðar) og hefur það hlutverk að keyra börn frá Frístundaheimilum og skóla í íþrótta- og tómstundastarf innan sveitarfélagsins. Öll börn geta nýtt sér tómstundabílinn og ekki er innheimt neitt gjald fyrir aksturinn.
Tómstundaakstur innan Sveitarfélagsins Árborgar heldur áfram skólaárið 2026-2027. Aksturskipulagið fyrir leið 2 milli Selfoss, Stokkseyrar, Eyrarbakka og Tjarnarbyggðar verður áfram í boði og leið 1 er innan Selfoss. Þjónustan er áfram keyrð í samstarfi við Guðmund Tyrfingsson ehf.
Tómstundabíllinn keyrir frá 25. ágúst 2026 til og með 11. júní 2027 samkvæmt tímatöflu og er ekið alla virka daga, þar á meðal merkta frídaga í grunnskólum, líkt og vetrarfrí eða aðra starfsdaga.
Það er enginn starfsmaður (utan bílstjóra) í tómstundabílnum en foreldrar eru hvattir til að fara fyrstu ferðina með börnum sínum til að kenna þeim á aðstæður.
Allar ábendingar um tómstundaaksturinn eru vel þegnar en hægt er að senda þær ásamt fyrirspurnum á netfangið gunnars@arborg.is eða hafa samband í síma 480 1900.
- Þjónustan og leiðakerfið innan Selfoss er reglulega endurskoðaðað til að mæta auknum notendafjölda og efla þjónustuna. Allar breytingar eru birtar á heimasíðu sveitarfélagsins.

Leið 1 - Tómstundaakstur innan Selfoss

Leið 2 - Tómstandaakstur frá Eyrarbakka og Stokkseyri með viðkomu í FSU


