Tré og straumur ehf skrifaði undir samning við Fasteignafélag Árborgar slf vegna framkvæmdaverksins „Hreinsistöðin við Geitanes – Fullnaðarfrágangur“
Undirritaður var samningur þann 1. júní 2026 milli Tré og straums ehf og Fasteignafélags Árborgar slf vegna fullnaðarfrágangs hreinsistöðar frárennslis við Geitanes.
Nú þegar hefur uppsteypa burðarvirkis átt sér stað. Verk þetta felur í sér fullnaðarfrágang hreinsistöðvarinnar, uppsetningu vélbúnaðar og lagna ásamt helstu húskerfum. Þá skal koma fyrir gönguleiðum úr heitgalvaníseruðu stáli samkvæmt teikningum, setja upp vatnsþétta hurð milli þurrrýmis og votrýmis, setja upp lúgu og brunastiga. Að utan skal klára allan frágang útveggja, hurða og glugga. Fullnaðarfrágangur töflurýmis er innifalinn ásamt loftræsirými og lífsíu (e. biofilter).
Efla hf verkfræðistofa er ráðgjafi og hönnuður mannvirkisins fyrir verkkaupa og byggingarstjórnun og framkvæmdaeftirlit er unnið af Verkfræðistofu Guðjóns Þ. Sigfússonar ehf. Verklok eru áætluð 30. desember 2026.
Mannvirkja- og umhverfissvið

Mynd tekin við undirritun samnings 1. Júní 2026 frá vinstri talið:
Atli Marel Vokes - sviðsstjóri mannvirkja- og umhvefissviðs Árborgar og Ólafur F. Leifsson eigandi Tré og straumur ehf.

