Umfangsmesta gatnaverkefni í sögu sveitarfélagsins
Fyrsta skóflustunga að 2.áfanga gatnagerðar og lagna í Björkurstykki fór fram 22. febrúar 2021 að viðstöddum fulltrúum sveitarfélags og verktaka.
Verkið er það umfangsmesta í gatnagerð sem boðið hefur verið út hjá Sveitarfélaginu Árborg og mun Borgarverk sinna verkefninu, en þeir hafa gríðamikla reynslu á því sviði.
Verkinu er áfangaskipt og eru áætluð verklok 01.06.2024. Fyrsta áfanga sem inniheldur 40 lóðir - par, rað og einbýlishús á að vera lokið 01.09.2021 næstkomandi. Með öðrum áfanga mun svæðið telja 92 lóðir.