Umhverfisverðlaun Árborgar 2020
Umhverfisnefnd Árborgar hefur valið snyrtilegasta fyrirtækið, fallegasta garðinn, fjölbýlið og götuna árið 2020 sem og þann aðila sem hefur sinnt framúrskarandi starfi í umhverfismálum fyrir sitt nærsamfélag á undanförnum árum.
Í dag, á degi íslenskrar náttúru, miðvikudaginn 16.september afhentu Eggert Valur Guðmundsson, formaður bæjarráðs og Gísli Halldór Halldórsson, bæjarstjóri viðurkenningar fyrir eftirtalda flokka:
Fallegasti garðurinn
Tryggvagata 30, 800 Selfossi.Eigendur eru þau Hafsteinn Kristjánsson, Vilhjálmur Þórðarson og Ingibjörg Guðmundsdóttir.
Fallegasta fjölbýli
Pálmatrésblokkir Austurvegi 39 – 41, 800 Selfossi.Á myndinni eru Gísli og Eggert ásamt Ásgeiri Valdimarssyni, fulltrúa íbúa.
Snyrtilegasta fyrirtækið
GK Bakarí Austurvegi 31, 800 Selfossi.Á myndinni eru Gísli og Eggert ásamt Kjartani og Guðmundi í GK bakarí.