Umhverfisviðurkenningar Sveitarfélagsins Árborgar 2025
Umhverfisnefnd Sveitarfélagsins Árborgar afhenti um helgina umhverfisviðurkenningar ársins 2025.
Nefndin kallaði eftir tillögum frá íbúum í eftirfarandi flokkum: fallegasti garðurinn, snyrtilegasta fyrirtækið eða stofnun, fallegasta gatan og framlag til umhverfismála.
Fjöldi tilnefninga kom inn frá íbúum Árborgar. Nefndarmenn fóru yfir tilnefningarnar og kusu á endanum milli þeirra sem komu helst til greina í hverjum flokki.
Viðurkenningarnar skiptast eftirfarandi árið 2025:
Fallegasta gatan er Birkigrund. Elsti íbúinn býr í Birkigrund 29, það er Ólafur Sigfússon, fæddur 20. maí 1938. Sá yngsti býr í Birkigrund 36, Elfar Örn Óskarsson, fæddur 7. október 2024. Foreldar hans eru Tinna Dögg Tryggvadóttir og Óskar Örn Hróbjartsson.
Birkigrund var valin því hún er heilt yfir snyrtileg og falleg gata í grónu umhverfi.
Fallegasta fyrirtækið er Húsasmiðjan við Larsenstræti 6. Stjórnendur þar eru Sverrir Einarsson og Guðrún María. Húsið var tekið í notkun haustið 2023 og var mikill metnaður settur í að hafa allt hið glæsilegasta, bæði hús og lóð.
Fallegasti garðurinn er að Austurvegi 29 á Selfossi, þar búa Gísli Þór Guðmundson og Sólveig Ósk Hallgrímsdóttir.
Garðurinn hlaut tilnefningu en hann hefur vakið mikla athygli fyrir fallegt umhverfi og miklar skreytingar á hverju ári. Garðurinn var nýlega valinn fallegasti garður Íslands af lesendum visis.is
Fallegasta fjölbýlið er Austurvegur 55-57, þar eru 27 íbúðir. Formaður húsfélagsins er Jón Bjarnason. Húsið var byggt árið 2021 og er allur frágangur til mikils sóma og lóðin svo skemmtileg og vel hirt að eftir því er tekið.
Umhverfisviðurkenning Árborgar hlýtur heilsubótarganga Félags eldri borgara á Selfossi sem gengur um og plokkar.
Ágústa Guðlaugsdóttir stendur fyrir göngunni og með henni ganga konur, mismargar, sem plokka með henni. Þær fara í gönguna á hverjum degi og hafa séð um að halda austurhluta bæjarins hreinum og þeim svæðum sem þær ganga um hverju sinni og sjá rusl. Það er ómetanlegt að eiga konur sem hugsa svona vel um bæði heilsuna og það hlutverk að fegra sinn heimabæ.