Vallaskóli vann Skjálftann 2025
Annað árið í röð sigraði Vallaskóli á Selfossi í Skjálftanum, hæfileikakeppni sunnlenskra ungmenna, sem haldinn var í fimmta sinn í íþróttahúsinu í Þorlákshöfn síðastliðinn laugardag.
Skjálftinn, hæfileikakeppni sunnlenskra ungmenna fór fram í fimmta sinn í um helgina við hátíðlega athöfn. Á hátíðinni sýndu ungmenni úr 8.-10 bekk frá Grunnskólum á Suðurlandi fjölbreytt og áhrifarík sviðsverk.Vallaskóli bar sigur úr býtum við gífurleg fagnaðarlæti með verkið sitt Litríkir skuggar en verkið speglar bakslagið sem dynur á hinsegin samfélaginu.
Annað sætið hlaut Grunnskólinn í Hveragerði fyrir verkið Þori, get og vil en verkið fjallar um kvenréttindabaráttuna og ferðalagið sem konur hafa þurft að fara í til að fá sömu réttindi og karlmenn.
Í þriðja sæti var Reykholtsskóli með verkið Steríótýpur en verkið fjallar um það að vilja falla inn í hópinn en þurfa þess ekki.
Hátíðin einkenndist af samkennd, hugrekki, vináttu og samstöðu. Verkin voru hver öðru áhrifaríkari og sendu þau öll öflugan boðskap út í samfélagið.
Hægt er að sjá öll atriði SKJÁLFTANS 2025 ár RÚV: SKJÁLFTINN Á RÚV
