Vel heppnuð sumarnámskeið Frístundaheimila Árborgar
Nú á dögunum lauk sumarnámskeiðum Frístundaheimila Árborgar fyrir börn fædd á árunum 2016–2019. Boðið var upp á fjögur fjölbreytt námskeið, þar sem hvert þeirra hafði sitt eigið þema: Óvissuvika, Náttúruvika, Hreystivika og Vísindavika.
Markmið námskeiðanna var að bjóða börnunum upp á skemmtilegt, fjölbreytt og lærdómsríkt sumar þar sem leikur, hreyfing, útivera og sköpun fengu að njóta sín. Í hverri viku fóru börnin í spennandi vettvangsferðir og tóku þátt í fjölmörgum verkefnum sem tengdust þema vikunnar. Meðal annars var farið að skoða hellana á Hellu, heimsóttar nokkrar sundlaugar á Suðurlandi og farið í Slakka þar sem börnin fengu tækifæri til að kynnast dýrunum og njóta samverunnar.
Auk ferðanna tóku börnin þátt í fjölbreyttum leikjum, þrautum, listsköpun, tilraunum, útivist og hreyfingu. Áhersla var lögð á gleði, vináttu og samvinnu o
g skapaðist einstaklega skemmtileg stemning á öllum námskeiðunum.
Námskeiðin tókust afar vel og bæði börn og starfsfólk skemmtu sér konunglega. Börnin hafa staðið sig einstaklega vel í sumar og það hefur verið sannkölluð ánægja að fylgjast með þeim takast á við ný verkefni, eignast nýja vini og skapa ótal skemmtilegar minningar.
Veðrið hefur verið okkur afar hagstætt mestallan tímann, þó að pollagallinn hafi vissulega fengið að fylgja með á námskeiðin oftar en einu sinni. Það hefur þó ekki dregið úr gleðinni, enda vita allir að íslenskt sumar býður upp á alls kyns veður – og góð útiföt gera alla daga skemmtilega.

Frístundaheimili Árborgar vilja þakka öllum börnunum sem tóku þátt í námskeiðunum fyrir frábært sumar. Það hefur verið sannkölluð ánægja að fá að fylgjast með gleði þeirra, forvitni og framförum og starfsfólkið þakkar jafnframt foreldrum og forráðamönnum fyrir traustið og gott samstarf. Við óskum öllum áframhaldandi gleðilegs sumars, og sjáumst hress og kát í haust.


