Vinnuskóli Árborgar sumarið 2021
Nú er opið fyrir umsóknir í Vinnuskóla Árborgar sumarið 2021. Í ár er 7.bekk í fyrsta skipti boðið að taka þátt í vinnuskólanum.
Hægt er að sækja um í gegnum skráningarkerfið Völu: Skrá í Vinnuskóla Árborgar
Öllum nemendum 7., 8., 9. og 10. bekkja býðst að koma til starfa við fjölbreytt verkefni sem flest snúa að garðyrkju og umhirðu í sveitarfélaginu. Þá geta unglingar sem voru að klára 9. bekk einnig sótt um að taka þátt í Grænjaxlinum en þar er unnið með margvísleg skapandi verkefni, t.d. allskonar margmiðlunarvinnu og fjölmiðlaverkefni.
Nánari upplýsingar um Vinnuskóla Árborgar er hægt að finna hér: Vinnuskóli Árborgar