Vöxtur og vellíðan á fræðsludegi fjölskyldusviðs Árborgar
Fimmtudaginn 20. ágúst 2026 fór fram árlegur fræðsludagur fjölskyldusviðs Sveitarfélagsins Árborgar í Vallaskóla. Þetta var í fyrsta sinn sem dagurinn var haldinn þar. Yfirskrift fræðsludagsins að þessu sinni var Vöxtur og vellíðan og sóttu um 700 manns daginn, starfsfólk leik- og grunnskóla, frístunda-, skóla- og velferðarþjónustu, auk annarra sem koma að þjónustu, stuðningi og velferð íbúa Árborgar.
Markmið dagsins var að efla faglegt starf, skapa sameiginlegan vettvang fyrir fræðslu og samtal og styðja við vöxt og vellíðan starfsfólks í fjölbreyttum störfum fjölskyldusviðs. Yfirskriftin vísaði meðal annars til þess að starfsfólk kæmi saman til að efla þekkingu sína, miðla reynslu og styrkja tengsl þvert á starfsstöðvar og þjónustuþætti.
Dagskráin hófst undir fundarstjórn Gunnars Eysteins Sigurbjörnssonar, deildarstjóra frístundaþjónustu. Bragi Bjarnason bæjarstjóri ávarpaði gesti og bauð starfsfólk velkomið til dagsins. Í kjölfarið fór Heiða Ösp Kristjánsdóttir, sviðsstjóri fjölskyldusviðs, yfir stöðu sviðsins, helstu áherslur og verkefni vetrarins fram undan. Hún fjallaði meðal annars um mikilvægi farsældar, snemmtæks stuðnings, þverfaglegrar samvinnu, skýrra verkferla og áframhaldandi þróunar á þjónustu. Þá lagði hún áherslu á mannauð sviðsins, þekkingu starfsfólks og mikilvægi þess að starfsfólk læri hvert af öðru í daglegu starfi.
Fyrir hádegi fjallaði Hrund Þrándardóttir, sálfræðingur og eigandi Sálstofunnar, um taugafjölbreytileika. Að erindinu loknu tóku við fjölbreyttar vinnustofur þar sem starfsfólk gat valið sér viðfangsefni eftir áhuga og starfssviði. Alls voru um 44 vinnustofur í boði yfir daginn og voru flestar þeirra í höndum starfsfólks sveitarfélagsins sjálfs. Með því varð fræðsludagurinn jafnframt hluti af því lærdómssamfélagi sem fjölskyldusvið leggur áherslu á, þar sem starfsfólk lærir hvert af öðru, miðlar reynslu og nýtir sameiginlega þekkingu til að efla faglegt starf og þróa þjónustuna áfram.
Eftir hádegishlé hélt dagskráin áfram með lengri vinnustofum og sameiginlegum erindum. Katrín Þrastardóttir frá Auðnast fjallaði um samskipti og vinnumenningu og Edda Björgvinsdóttir leikkona flutti erindið Húmor og hamingja, þar sem hún fékk salinn til að skellihlæja um leið og hún deildi góðum ráðum um hvernig hægt er að halda í húmorinn, gleðina og léttleikann í daglegu lífi og starfi.
Fræðsludagurinn skapaði tækifæri fyrir starfsfólk fjölskyldusviðs til að koma saman, sækja innblástur, deila reynslu og styrkja sameiginlega sýn á mikilvægi góðs samstarfs, fagmennsku og vellíðunar í þjónustu við íbúa Árborgar. Að loknum degi voru þátttakendur vonandi fróðari, tengdari og með aukinn innblástur í farteskinu.
Að baki fræðsludegi sem þessum liggur mikil vinna og vandaður undirbúningur. Þverfaglegur hópur starfsfólks á fjölskyldusviði hefur unnið að skipulagningu dagsins í vetur, auk þess sem margir lögðu hönd á plóg við framkvæmdina sjálfa. Sú samvinna endurspeglar vel anda dagsins.



















