Zelsíuz opnar nýtt útibú í Stekkjaskóla
7. september sl. opnaði félagsmiðstöðin Zelsíuz nýtt útibú í Stekkjaskóla. Opnunin markar spennandi skref í þróun félagsmiðstöðvarstarfs í Árborg og þeirri vegferð að færa þjónustuna nær börnum og unglingum.

Hrafnhildur Svala er verkefnastjóri Zelsíuz í Stekkjaskóla og mun halda utan um starfið þar. Með nýja útibúinu verður félagsmiðstöðvarstarfið sýnilegra og aðgengilegra fyrir nemendur og gefst þeim tækifæri til að kynnast starfinu og starfsfólki Zelsíuz í sínu daglega umhverfi.
Hluti af starfinu verður að vera með opnanir fyrir nemendur í frímínútum og í hádeginu. Þá verður þjónusta fyrir nemendur í 5.–7. bekk aukin, með fleiri opnunum í hverri viku. Fyrir nemendur í 8.–10. bekk verður opið tvisvar í viku í Stekkjaskóla.
Markmiðið með útibúinu er að skapa öruggan og jákvæðan vettvang þar sem börn og unglingar geta hist, myndað tengsl, tekið þátt í fjölbreyttu starfi og haft áhrif á það sem fram fer. Með því að færa félagsmiðstöðvarstarfið inn í nærumhverfi barnanna er jafnframt hægt að ná til fleiri barna og unglinga og lækka þröskuldinn fyrir þátttöku í starfinu.

Fyrsta opnunin tókst vel og var ánægjulegt að sjá áhuga nemenda á nýja útibúinu. Starfið mun halda áfram að þróast í samstarfi við börnin og unglingana sjálfa, þar sem hugmyndir þeirra, áhugasvið og þarfir verða hafðar að leiðarljósi.
Opnun Zelsíuz í Stekkjaskóla er mikilvægur liður í því að efla félagsmiðstöðvarstarf í Árborg og tryggja að fleiri börn og unglingar hafi aðgang að vönduðu frístundastarfi þar sem þau fá tækifæri til að vera virk, tilheyra og hafa áhrif.
Stefnt er að því að Zelsíuz muni opna útibú í öllum grunnskólum Árborgar á næstu árum.

