Menningarmánuðurinn október
Menningarmánuðurinn október er haldinn hátíðlegur Sveitarfélaginu Árborg ár hvert. Fjölbreyttir viðburðir fyrir alla aldurshópa. Tónleikar, opin hús, sýningar, sögukvöld, menningargöngur, listasmiðjur og margt fleira.
VIÐBURÐADAGATAL
Menningarmánuðurinn október er hlaðinn fjölbreyttri dagskrá fyrir alla aldurshópa. Við hvetjum alla íbúa og gesti sveitarfélagsins til að taka þátt og njóta alls þess besta sem mánuðurinn hefur upp á að bjóða, hvort sem það eru tónleikar við sundlaugarbakkann, fræsluganga um Hellisskóg, listasmiðjur fyrir yngstu kynslóðina eða bíóferðir þá er alltaf nóg um að vera í sveitarfélaginu í Menningarmánuðinum október.
Hvað eru um að vera í ár?
Fyrsta vikan í Menningarmánuðinum bíður upp á útivist, innivist, kvöldvöku, fimmtudagskrydd og margt fleira!
- Haustsýning myndlistarnemenda FSu í Listagjánni er opin til og með 10. október
- Skoffín og skrímsli á Bókasafni Árborgar, Selfossi
- Fræðslugöngu um Hellisskóg
- Opið hús hjá Byggðasafni Árnesinga | 70 sögur af safni - afmælissýning
- Vika bannaðra bóka á Bókasafni Árborgar, Selfossi og Eyrarbakka
- Kvöldvaka með Fossbúum
- Opið hús og örnámskeið hjá Myndlistarfélagi Árnessýslu
- Bannaðar bækur, dónalegir höfundar og einkaherbergi lesandans - Margrét Tryggvadóttir
- Brot af því besta | Opið hús hjá Héraðsskjalasafni Árnesinga
- Krukkuskreytingadagur á Bókasafni Árborgar, Selfossi og Eyrarbakka
- Listasmiðja Davíð ART við Sundhöll Selfoss
- Opin söngstund í Selfosskirkju
Við hvetjum alla áhugasama að fylgjast með á viðburðadagatali sveitarfélagsins
þar sem viðburðir geta "poppað" upp með skömmum fyrirvara
Hvert ár mótast dagskrá hátíðarinnar af íbúum sveitarfélagins, félagasamtökum og fleirum. Við hvetjum því alla áhugasama til að hafa samband til að tryggja fölbreytta og skemmtilegan menningarmánuð fyrir alla aldurshópa.
Hægt að senda upplýsingar eða fyrirspurnir á olafur.rafnar@arborg.is og margretb@arborg.is eða hringja í síma 480 1900