60. fundur bæjarstjórnar, kjörtímabilið 2022 - 26
Fundur bæjarstjórnar Árborgar verður haldinn miðvikudaginn 18. júní 2025 í Grænumörk 5, Selfossi, kl.16:00.
Dagskrá:
Almenn erindi
- 2503409 - Eyjasel 12 - Beiðni um umsögn um geymslustað ökutækja
Afgreiðslu málsins var frestað á 57. fundi bæjarstjórnar.
Tillaga frá 43. fundi skipulagsnefndar sem haldinn var 23. apríl, liður 2.
Beiðni um umsögn um geymslustað ökutækja. Samgöngustofa óskar eftir umsögn Sveitarfélagsins Árborgar, skv. 2. mgr. 3. gr. laga nr. 65/2015 um ökutækjaleigur, vegna umsóknar Kodiak Travel ehf, um geymslustað ökutækja að Eyjaseli 12 á Stokkseyri. Sótt er um að leiga út eitt ökutæki.
Í aðalskipulagi Árborgar 2020 - 2036 kemur m.a. eftirfarandi fram um stefnu byggðar á Eyrarbakka og Stokkseyri:
Að heimild sé fyrir minniháttar atvinnustarfsemi innan íbúðarbyggðar svo sem gistiheimili, ferðaþjónustu, minni verslanir og menningartengda starfsemi, til að efla fjölbreytni í atvinnulífi.
Skipulagsnefnd samþykkir fyrir sitt leyti að lóðarhafa á Eyjaseli 12, verði heimilt að geyma eitt ökutæki sem tengist útleigu bíls. Nefndin gerir þó fyrirvara um jákvæða niðurstöðu grenndarkynningar, og skal grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum við Eyjaseli 11 og Eyrarbraut 14 og 16.
Lagt er til við bæjarstjórn að samþykkja að lóðarhafa á Eyjaseli 12, verði heimilt að geyma eitt ökutæki sem tengist útleigu bíls þó með fyrirvara um jákvæða niðurstöðu grenndarkynningar, og skal grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum við Eyjaseli 11 og Eyrarbraut 14 og 16.
Bæjarstjórn frestaði afgreiðslu málsins á 57. fundi þar til niðurstaða grenndarkynningar lægi fyrir.
Bókun 46. fundar skipulagsnefndar frá 11. júní sl. liður 2.
Eyjasel 12 - Beiðni um umsögn um geymslustað ökutækja.
Umsagnarbeiðni frá Samgöngustofu um geymslustað ökutækja fyrir Eyjasel 5 á Stokkseyri lögð fram eftir grenndarkynningu. Sótt er um að leigja út eitt ökutæki. Grenndarkynning fór fram dagana 25. apríl til 26. maí 2025 og bárust engar athugasemdir.
Skipulagsnefnd Árborgar veitir jákvæða umsögn við umsagnarbeiðni. Farið hefur fram grenndarkynning, engar athugasemdir bárust.
Lagt er til við bæjarstjórn að samþykkja að lóðarhafa á Eyjaseli 12, verði heimilt að geyma eitt ökutæki sem tengist útleigu bíls. - 2311112 - Stjörnusteinar 7 og Heiðarbrún 2-8b - Deiliskipulag íbúðargötu
Tillaga frá 46. fundi skipulagsnefndar frá 11. júní sl. liður 5. Stjörnusteinar 7 og Heiðarbrún 2 - 8b - Deiliskipulag íbúðargötu.
Lagt er fram að lokinni auglýsingu deiliskipulag fyrir íbúðarhúsagötuna Stjörnusteina 7 og Heiðarbrún 2 - 8b á Stokkseyri.
Skipulagsnefnd Árborgar hefur um nokkurt skeið horft til þess að reyna að þétta byggð, þar sem þess er nokkur kostur. Hefur verið horft sérstaklega til auðra lóða sem hafa staðið þannig árum og áratugum saman í þegar byggðum hverfum. Nefndin telur að það sé ávinningur fyrir Sveitarfélagið Árborg, að það séu byggð hús á lóðunum, innan um önnur íbúðarhús, og myndist þá heildstæð götumynd á hverju svæði fyrir sig. Meginmarkmið deiliskipulagstillögunnar er að gera deiliskipulag fyrir götulínuna á fyrrgreindum lóðum, Stjörnusteinar 2 og lóðirnar Heiðarbrún 2-8b, á Stokkseyri. Deiliskipulagstillagan er í samræmi við Aðalskipulag Árborgar 2020 - 2036. Fyrir er í gildi (B-deild stjórnartíðinda 17.3.2023) deiliskipulag fyrir lóðina Heiðarbrún 6 - 6a, og mun það falla úr gildi við gildistöku nýs deiliskipulags.
Tillagan var auglýst í Lögbirtingablaði og Dagskránni frá 13.2.2025 með athugasemdafresti til 27.3.2025. Þá var tillagan aðgengileg á heimasíðu Sveitarfélagsins Árborgar. Athugasemdir bárust frá íbúum við Heiðarbrún 2 og Heiðarbrún 8.
Skipulagsnefnd hefur farið yfir athugasemdir, og hefur sett saman í samantektarskjali viðbrögð við athugasemdum, sem mun fylgja með öðrum gögnum tillögunnar og verða send Skipulagsstofnun til afgreiðslu. Skipulagsnefnd áréttar að það sé ávinningur í að þétta byggð og gera eins heildstæða götumyndir og hægt er, þar sem því er viðkomið. Skipulagsnefnd samþykkir fyrir sitt leyti tillöguna í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr.123/2010, og mælist til að bæjarstjórn Árborgar samþykki tillöguna í samræmi við 41. gr. sömu laga.
Gerðar hefi verið lagfæringar á uppdrætti í samræmi við samantektarblað með svörum og viðbrögðum nefndarinnar. - 2505195 - Tryggvagata 15 - Deiliskipulagsbreyting 2025
Tillaga frá 46. fundi skipulagsnefndar frá 11. júní sl. liður 1. Tryggvagata 15 - Deiliskipulagsbreyting 2025.
Landform leggur fram tillögu að breytingu á gildandi deiliskipulagi skóla og sundhallarreits við Tryggvagötu 15 á Selfossi.
Um er að ræða breytingu á deiliskipulagi sem samþykkt var í bæjarstjórn Árborgar þann 15. maí 2013 og tók gildi með auglýsingu nr. 591 23. júní 2014. Þrjár breytingar hafa verið gerðar á deiliskipulaginu síðan. Í síðustu breytingunni, sem samþykkt var í bæjarstjórn Árborgar þann 13. desember 2023 var byggingarheimild á nýjum byggingarreit stækkuð sem heimilaði viðbyggingu á tveimur hæðum norðan við sundhöllina til að stækka líkamsræktaraðstöðu á fyrstu og annarri hæð. Þeirri uppbyggingu er nú lokið en frágangur á lóðinni eftir. Nauðsynlegt er að stækka sundlaugarsvæðið og bæta við kennslu/keppnislaug vegna ört stækkandi hóps nemenda í sveitarfélaginu, sem þarf að komast í skólasund.
Deiliskipulagsbreyting þessi er byggð á þarfagreiningu Verkís og er í samræmi við gildandi aðalskipulag Sveitarfélagsins Árborgar og ákvæða sem þar gilda um reit S3. Breytingin varðar Tryggvagötu 15, lóð sundhallarinnar en einnig Tryggvagötu 13, lóð Sandvíkurseturs, þar sem lóðarmörk milli þessar lóða, breytast. Til stendur að reisa nýja búningsklefa fyrir nemendur, austan við nýja laug og þarf því að huga að aðkomu skólabíla við Bankaveg. Einnig stendur til að bæta aðra aðstöðu á lóð, s.s. rennibraut, heita potta og kalda potta.
Breytingar felast í eftirfarandi þáttum:
1. Ný kennslu/keppnislaug með sjö brautum er staðsett sunnan við núverandi laug syðst á útisvæði.
2. Núverandi pottar næst útiklefum færast og breytast.
3. Nýr byggingarreitur kemur sunnan við Sundhöll. Innan hans er heimilt að reisa nýjan vaktturn og upphitaða búningsklefa.
4. Nýr byggingarreitur fyrir geymslu og þjálfaraaðstöðu kemur vestan við núverandi laug.
5. Ný rennibraut kemur í stað núverandi.
6. Aðkoma fyrir skólabíla/rútur/þjónustubíla verður við Bankaveg, austan megin við nýja búningsklefa. Bílastæðum fækkar.
7. Lóðamörk milli Tryggvagötu 13 og 15 færast til norðurs og þar með breytast lóðarstærðir, sjá meðfylgjandi töflu.
8. Nýtingarhlutfall beggja lóða breytist vegna breyttra lóðarstærða og aukins byggingarmagns á lóð Tryggvagötu 15, sjá meðfylgjandi töflu.
9. Bílastæði hreyfihamlaðra norðan við Sundhöll breytast. Aðrir byggingarskilmálar haldast óbreyttir.
Skipulagsnefnd samþykkir fyrir sitt leiti breytingartillögu í samræmi við 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og samþykkir að tillagan verði auglýst skv. 41 gr. sömu laga, og mælist til að Bæjarstjórn Árborgar samþykki tillöguna skv. 43. gr. skipulagslaga og til auglýsingar í samræmi við 41. gr. sömu laga. - 2404207 - Breytingar á greiðsluþáttöku foreldra hjá dagforeldrum
Tillaga frá 17. fundi velferðarnefndar frá 27. maí sl. liður 4. Breytingar á greiðsluþáttöku foreldra hjá dagforeldrum.
Lagt er til að samþykkt verði heildarendurskoðun á reglum Sveitarfélagsins Árborgar um daggæslu barna í heimahúsum. Endurskoðunin miðar að því að einfalda reglurnar, skýra ábyrgðarsvið og skilja að gjaldskrá og reglur. Jafnframt er lagt til að ákvæði um hærri niðurgreiðslu til foreldra barna 18 mánaða og eldri verði fest í sessi, auk þess sem samþykkt sveitarfélagsins um aukna greiðsluþátttöku vegna hækkunar á gjaldskrá dagforeldra verði formlega innleidd í reglurnar.
Velferðarnefnd lýsir yfir ánægju með heildarendurskoðun reglna um daggæslu barna í heimahúsum í Sveitarfélaginu Árborg og að hærri niðurgreiðslu til foreldra barna 18 mánaða og eldri hafi verið fest í sessi.
Velferðarnefnd leggur til við bæjarstjórn að samþykkja reglurnar. - 2506113 - Reglur um leikskóla í Árborg 2025
Tillaga frá 21. fundu fræðslu- og frístundanefndar, frá 11. júní sl. liður 1. Reglur um leikskóla í Árborg 2025.
Heildarendurskoðun á reglum um leikskóla í Árborg hefur farið fram. Nýjar reglur lagðar fram til staðfestingar auk minnisblaðs frá lögfræðingi og deildarstjóra skólaþjónustu.
Guðrún Ásta Ólafsdóttir, lögfræðingur sveitarfélagsins, fór yfir minnisblaðið og gerði grein fyrir helstu breytingum á reglunum.
Fræðslu- og frístundanefnd samþykkir samhljóða fyrir sitt leyti reglur um leikskóla í Árborg og vísar áfram til fullnaðarafgreiðslu í bæjarstjórn. - 2502208 - Viðauki við fjárhagsáætlun 2025
Tillaga frá 133. fundu bæjarráðs frá 12. júní sl. liður 7. Viðauki við fjárhagsáætlun 2025. Viðauki nr. 3.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka nr. 3 við fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Árborgar 2025.
Áhrif viðaukans á rekstrarniðurstöðu samstæðu sveitarfélagsins Árborgar er kr. 6.877.599,-.
Áhrif viðaukans á sveitasjóð A hluta eru kr. 6.877.599,- og lækkar því rekstrarafgangur í A hluta í áætlaður neikvæður um kr. 781.767.000,- eftir að viðauki er samþykktur.
Áhrif viðaukans á samantekinn A og B hluta er kr. 6.877.599,- og verður því rekstrarniðurstaða samantekins A og B hluta áætluð neikvæð um kr. 186.682.000,- .
Viðaukanum er mætt með lækkun á handbæru fé. - 2206157 - Fundartími bæjarstjórnar og bæjarráðs kjörtímabilið 2022 - 2026
Tillaga um fyrirkomulag funda bæjarstjórnar í júlí og ágúst og að bæjarráði verði falin fullnaðarafgreiðsla mála.
Forseti leggur til að bæjarstjórn taki sumarleyfi og að fundir bæjarstjórnar liggi niðri í júlí. Næsti fundur bæjarstjórnar verði þann 20. ágúst næstkomandi.
Meðan bæjarstjórn er í sumarleyfi fari bæjarráð með sömu heimildir og bæjarstjórn hefði ella. Bæjarráð tekur ákvarðanir um að víkja frá fundartímum skv. bæjarmálasamþykkt eftir því sem þurfa þykir.
Fundargerðir - 2504022F - Ungmennaráð - 4/2025
4. fundur haldinn 28. apríl. - 2505013F - Ungmennaráð - 5/2025
5. fundur haldinn 12. maí. - 2505028F - Ungmennaráð - 6/2025
6. fundur haldinn 26. maí. - 2505021F - Umhverfisnefnd - 22
22. fundur haldinn 27. maí. - 2505025F - Velferðarnefnd - 17
17. fundur haldinn 27. maí. - 2505023F - Skipulagsnefnd - 45
45. fundur haldinn 28. maí. - 2505033F - Bæjarráð - 132
132. fundur haldinn 5. júní. - 2506008F - Bæjarráð - 133
133. fundur haldinn 12. júní.