1. fundur félagsmálanefndar
1. fundur félagsmálanefndar Árborgar haldinn í Ráðhúsi Árborgar,
miðvikudaginn 21. júní 2006, kl. 17:15
Mætt: Kristín Eiríksdóttir, Guðmundur B. Gylfason, Þórunn Elfa Bjarkadóttir, Alma Lísa Jóhannsdóttir, Bjarnheiður Ástgeirsdóttir, Ragnheiður Thorlacius, framkvæmdastjóri Fjölskyldumiðstöðvar, Þorgerður Guðmundsdóttir, sálfræðingur og sérfræðingur í öldrunarmálum og Anný Ingimarsdóttir, félagsráðgjafi og verkefnastjóri félagslegrar ráðgjafar.
1. Kynning á nefndarmönnum.
Nefndarmenn kynna sig.
2. Undirritun drengskaparheits.
3. Kosningar.
1. Varaformaður Guðmundur B. Gylfason.
2. Ritari Bjarnheiður Ástgeirsdóttir
Samþykkt með 3 atkvæðum, 2 sitja hjá , fulltrúar S og V lista.
4. Ákveða framtíðar fundardag og tíma.
Ákveðinn var annar mánudagur í mánuði og fundartími 17:15
5. Starfsmenn Fjölskyldumiðstöðvar kynntu sig og starfsemi sína.
Anný Ingimarsdóttir, félagsráðgjafi og verkefnastjóri félagslegrar ráðgjafar.
Þorgerður Jóna Guðmundsdóttir, sálfræðingur og sérfræðingur í öldrunarmálum.
Ragnheiður Thorlacius, framkvæmdastjóri Fjölskyldumiðstöðvar.
Starfsmenn kynntu reglur um verkefnaskiptingu milli félagsmálanefndar Árborgar og starfsmanna Fjölskyldumiðstöðvar Árborgar og ákveðið var að vinna eftir þeim.
6. Trúnaðarmál.
Fært í trúnaðarbók.
7. Önnur mál.
Rætt um hugmynd að stefnumótun.
Fundargerð lesin og fundi slitið kl. 19:06
Kristín Eiríksdóttir Þórunn Elva Bjarkadóttir,
Guðmundur B. Gylfason, Bjarnheiður Ástgeirsdóttir,
Alma Lísa Jóhannsdóttir, Anný Ingimarsdóttir,
Þorgerður Guðmundsdóttir Ragnheiður Thorlacius