1. fundur leikskólanefndar
1. fundur leikskólanefndar Árborgar haldinn í Ráðhúsi Árborgar þann 26. júní 2006.
Formaður nefndarinnar, Kristín Traustadóttir, setti fundinn kl. 17:00.
Mættir: Kristín Traustadóttir, Sigríður Anna Guðjónsdóttir, Gyða Björgvinsdóttir, Heiðdís Gunnarsdóttir. Gestir fundarins voru Ragnheiður Thorlacius forstöðumaður fjölskyldumiðstöðvar og Ásthildur Bjarnadóttir sérkennsluráðgjafi leikskólanna og fóru þær eftir 3.lið.
1. Kosning varaformanns og ritara,
Formaður lagði til að Róbert Sverrisson yrði varaformaður og Sigríður Anna Guðjónsdóttir ritari og var það samþykkt.
2. Nefndarmenn skrifuðu undir þagnarskyldu.
3. Kynning á nefndarmönnum og starfsmönnum.
4. Leikskólafulltrúi kynnti lög, reglugerðir og samþykktir sveitarfélagsins
vegna leikskólamála
5. Leikskólafulltrúi kynnti ársskýrslu leikskóla Árborgar fyrir skólaárið 2004-2005.
6. Leikskólafulltrúi kynnti stöðu leikskólamála í Árborg.
Önnur mál:
a) Fundartími ákveðinn 3.miðvikudag í mánuði klukkan 17.15 og er næsti fundur 16.ágúst, ákveðið að fundarboðun verði í formi tölvupóstar
b) Leikskólafulltrúi dreifði fréttabréfum frá Álfheimum til nefndarmanna
Fleira ekki tekið fyrir og fundi slitið klukkan 19.00
Kristín Traustadóttir
Gyða Björgvinsdóttir
Sigríður Anna Guðjónsdóttir
Heiðdís Gunnarsdóttir