19.6.2018
1. fundur bæjarstjórnar 2018 -2022
1. fundur bæjarstjórnar Árborgar, kjörtímabilið 2018-2022, haldinn mánudaginn 18. júní 2018 kl. 17:00 í Ráðhúsi Árborgar, Selfossi.
Neðanskráðir bæjarfulltrúar eru mættir:
Helgi S. Haraldsson, B-lista, forseti bæjarstjórnar,
Eggert Valur Guðmundsson, S-lista,
Arna Ír Gunnarsdóttir, S-lista,
Tómas Ellert Tómasson, M-lista,
Sigurjón Vídalín Guðmundsson, Á-lista,
Gunnar Egilsson, D-lista,
Brynhildur Jónsdóttir, D-lista,
Kjartan Björnsson, D-lista,
Ari Björn Thorarensen, D-lista,
Auk þess situr fundinn Rósa Sif Jónsdóttir sem ritar fundargerð.
Eggert Valur Guðmundsson S-lista, setti fundinn þar sem hann er aldursforseti þeirra bæjarfulltrúa sem eiga lengsta setu að baki í bæjarstjórn og stýrði honum á meðan fyrstu tveir liðirnir á dagskrá voru afgreiddir. Eggert bauð bæjarfulltrúa velkomna til starfa og þakkaði fráfarandi bæjarfulltrúum fyrir vel unnin störf fyrir sveitarfélagið.
Eggert Valur, leitaði afbrigða að taka á dagskrá sérstaklega lið 4 og 5 í fundargerð 146. fundar bæjarráðs frá 17. maí. Var það samþykkt samhljóða.
Dagskrá:
I. 1806080
Skýrsla yfirkjörstjórnar í Sveitarfélaginu Árborg vegna sveitarstjórnarkosninga 26. maí 2018.
Eggert Valur Guðmundsson, S-lista, flutti skýrslu yfirkjörstjórnar Sveitarfélagsins Árborgar vegna sveitarstjórnarkosninganna 26. maí sl.
II. 1806075
Kosningar í embætti innan bæjarstjórnar til eins árs.
- Kosning forseta til eins árs.
Lagt var til að Helgi Sigurður Haraldsson, B-lista, yrði kosinn forseti bæjarstjórnar til eins árs.Tillagan var borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða.
Helgi tók við stjórn fundarins, þakkaði hann það traust sem honum er sýnt með þessari kosningu.
- Kosning 1. varaforseta til eins árs.
Lagt var til að, Arna Ír Gunnarsdóttir, S-lista, yrði kosinn 1. varaforseti til eins árs.Tillagan var borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða.
- Kosning 2. varaforseta til eins árs.
Lagt var til að Tómas Ellert Tómasson, M-lista, yrði kosin 2. varaforseti til eins árs.Tillagan var borin undir atkvæði og samþykkt með 8 atkvæðum, bæjarfulltrúi Gunnar Egilsson, D-lista sat hjá.
- Kosning tveggja skrifara til eins árs.
Lagt var til að Sigurjón Vídalín Guðmundsson, Á-lista og Eggert Valur Guðmundsson, S-lista, yrðu kosnir skrifarar til eins árs.Tillagan var borin undir atkvæði og samhljóða.
- Kosning tveggja varaskrifara til eins árs.
Lagt var til að Arna Ír Gunnarsdóttir, S-lista, og Tómas Ellert Tómasson, M-lista, yrðu kosin varaskrifarar til eins árs.Tillagan var borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða
III. 1806075
Kosning þriggja fulltrúa í bæjarráð til eins árs og þriggja til vara sbr. 27. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Sveitarfélagsins Árborgar nr. 679/2013:
Aðalmenn: Varamenn:
Eggert Valur Guðmundsson Arna Ír Gunnarsdóttir
Sigurjón Vídalín Guðmundsson Álfheiður Eymarsdóttir
Gunnar Egilsson Kjartan Björnsson
Tillagan var borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða.
IV. 1806075
Kosning í kjörstjórnir til eins árs sbr. A-lið 46. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Sveitarfélagsins Árborgar nr. 679/2013:
- Yfirkjörstjórn, þrír fulltrúar og þrír til vara
- Undirkjörstjórn 1, þrír fulltrúar og þrír til vara
- Undirkjörstjórn 2, þrír fulltrúar og þrír til vara
- Undirkjörstjórn 3, þrír fulltrúar og þrír til vara
- Undirkjörstjórn 4, þrír fulltrúar og þrír til vara
- Undirkjörstjórn 5. (Eyrarbakki), þrír fulltrúar og þrír til vara
- Undirkjörstjórn 6. (Stokkseyri), þrír fulltrúar og þrír til vara
- Yfirkjörstjórn, þrír fulltrúar og þrír til vara.
Aðalmenn: Varamenn:
Ingimundur Sigurmundsson Þórarinn Sólmundarson
Steinunn Fjóla Sigurðardóttir Anna Ingadóttir
Bogi Karlsson Steinunn Erla Kolbeinsdóttir
- Undirkjörstjórn 1, þrír fulltrúar og þrír til vara.
Aðalmenn: Varamenn:
Íris Böðvarsdóttir Guðmundur Sigmarsson
Gunnar Gunnarsson Hólmfríður Einarsdóttir
Ólafur Bachmann Haraldsson Herborg Anna Magnúsdóttir
- Undirkjörstjórn 2, þrír fulltrúar og þrír til vara.
Aðalmenn: Varamenn:
Sesselja Sumarrós Sigurðardóttir Grétar Páll Gunnarsson
Ingibjörg Jóhannesdóttir Ingveldur Guðjónsdóttir
Valdemar Bragason Gunnar Þorkelsson
- Undirkjörstjórn 3, þrír fulltrúar og þrír til vara.
Aðalmenn: Varamenn:
Sigríður Anna Guðjónsdóttir Kristjana Hallgrímsdóttir
Hafdís Kristjánsdóttir Magnús Gísli Sveinsson
Jónína Halldóra Jónsdóttir Ingibjörg Elfa L. Stefánsdóttir
- Undirkjörstjórn 4, þrír fulltrúar og þrír til vara.
Aðalmenn: Varamenn:
Magnús Jóhannes Magnússon Svava Júlía Jónsdóttir
Inger Schiöth Sigríður Sigurjónsdóttir
Elvar Ingimundarson Þorgrímur Óli Sigurðsson
- Undirkjörstjórn 5 (Eyrarbakki), þrír fulltrúar og þrír til vara.
Aðalmenn: Varamenn:
Lýður Pálsson Arnar Freyr Ólafsson
María Gestsdóttir Þórarinn Ólafsson
Birgir Edwald Arnrún Sigurmundsdóttir
- Undirkjörstjórn 6 (Stokkseyri), þrír fulltrúar og þrír til vara.
Aðalmenn: Varamenn:
Ingibjörg Ársælsdóttir Kristín Þ. Sigurðardóttir
Ólafur Már Ólafsson Bjarkar Snorrason
Ragnhildur Jónsdóttir Guðni Kristjánsson
Tillaga að fulltrúum í kjörstjórnir var borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða.
V. 1806074
Tillaga Kjartans Björnssonar, D-lista, um kjör formanns íþrótta- og menningarnefndar.
Kjartan Björnsson- D, lista, tók til máls og lagði fram eftirfarandi tillögu:
Tillaga til bæjarstjórnar um kjör formanns íþrótta- og menningarnefndar
Lagt er til að Kjartan Björnsson, D - lista, verði formaður íþrótta- og menningar- nefndar Sveitarfélagsins Árborgar kjörtímabilið 2018-2022.
Tillagan var borin undir atkvæði og felld með fimm atkvæðum Á-, B-,M-, og S-lista gegn fjórum atkvæðum bæjarfulltrúa D-lista.
VI. 1806075
Kosning í nefndir, ráð og stjórnir til fjögurra ára sbr. B-lið . 46 gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Sveitarfélagsins Árborgar nr. 679/2013:
- Félagsmálanefnd, fimm fulltrúar og fimm til vara.
Aðalmenn: Varamenn:
Eggert Valur Guðmundsson, formaður Arna Ír Gunnarsdóttir
Inga Jara Jónsdóttir Fjóla Ingimundardóttir
Eyrún Björg Magnúsdóttir Guðfinna Gunnarsdóttir
Gunnar Egilsson Jóna Sigurbjartsdóttir
Helga Þórey Rúnarsdóttir Ólafur Hafsteinn Jónsson
Samþykkt samhljóða.
- Íþrótta- og menningarnefnd, fimm fulltrúar og fimm til vara.
Aðalmenn: Varamenn:
Guðbjörg Jónsdóttir, formaður Gunnar Rafn Borgþórsson
Guðmundur Kr. Jónsson Guðmundur Marías Jensson
Jóna Sólveig Elínardóttir Viðar Arason
Kjartan Björnsson Gísli Á. Jónsson
Karolina Zoch María Markó
Samþykkt með 8 atkvæðum, bæjarfulltrúi Kjartan Björnsson, D-lista sat hjá.
- Fræðslunefnd, fimm fulltrúar og fimm til vara.
Aðalmenn: Varamenn:
Arna Ír Gunnarsdóttir, formaður Klara Öfjörð Sigfúsdóttir
Guðmunda Ólafsdóttir Gissur Jónsson
Gunnar E. Sigurbjörnsson Sigurður Á. Hreggviðsson
Brynhildur Jónsdóttir Ingvi Már Guðnason
Þórhildur Ingvadóttir Jakob H. Burgel
Samþykkt samhljóða.
- Skipulags- og byggingarnefnd, fimm fulltrúar og fimm til vara
Aðalmenn: Varamenn:
Sigurjón Vídalín Guðmundsson, formaður Álfheiður Eymarsdóttir
Guðrún Jóhannsdóttir Ari Már Ólafsson
Sigurður Þorvarðarson Hjalti Tómasson
Ari B. Thorarensen Helga Þórey Rúnarsdóttir
Magnús Gíslason Ragnheiður Guðmundsdóttir
Samþykkt samhljóða.
- Framkvæmda- og veitustjórn, fimm fulltrúar og fimm til vara
Aðalmenn: Varamenn:
Tómas Ellert Tómasson, formaður Solveig Pálmadóttir
Álfheiður Eymarsdóttir Sigurjón Vídalín Guðmundsson
Viktor S. Pálsson Eggert Valur Guðmundsson
Sveinn Ægir Birgisson Guðjón Guðmundsson
Ragnheiður Guðmundsdóttir Þórdís Kristinsdóttir
Samþykkt samhljóða.
- Kjaranefnd, þrír fulltrúar og þrír til vara.
Aðalmenn: Varamenn:
Sigurjón Vídalín Guðmundsson Helgi S. Haraldsson
Eggert Valur Guðmundsson Arna Ír Gunnarsdóttir
Ari Björn Thorarensen Gunnar Egilsson
Samþykkt með 8 atkvæðum, bæjarfulltrúi Kjartan Björnsson, D-lista, sat hjá.
VII. 1806075
Kosning í nefndir, stjórnir eða til að sækja aðalfundi til fjögurra ára sbr. C-lið 46. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Sveitarfélagsins Árborgar nr. 679/2013:
- Aðalfundur SASS, ellefu fulltrúar og ellefu til vara.
Aðalmenn: Varamenn:
Helgi S. Haraldsson Guðbjörg Jónsdóttir
Sólveig Þorvaldsdóttir Inga Jara Jónsdóttir
Arna Ír Gunnarsdóttir Klara Öfjörð Sigfúsdóttir
Eggert Valur Guðmundsson Viktor S. Pálsson
Tómas Ellert Tómasson Guðrún Jóhannsdóttir
Sigurjón Vídalín Guðmundsson Álfheiður Eymarsdóttir
Gunnar Egilsson Þórhildur Dröfn Ingvadóttir
Brynhildur Jónsdóttir Magnús Gíslason
Kjartan Björnsson Karolina Zoch
Ari Björn Thorarensen Helga Þórey Rúnarsdóttir
Sveinn Ægir Birgisson Axel Ingi Viðarsson
Samþykkt samhljóða.
- Aðalfundur Sorpstöðvar Suðurlands, einn fulltrúi og einn til vara.
Aðalmaður: Varamaður:
Eggert Valur Guðmundsson Helgi S. Haraldsson
Samþykkt samhljóða.
- Aðalfundur Heilbrigðiseftirlits Suðurlands, ellefu fulltrúar og ellefu til vara
Aðalmenn: Varamenn:
Helgi S. Haraldsson Guðbjörg Jónsdóttir
Sólveig Þorvaldsdóttir Inga Jara Jónsdóttir
Arna Ír Gunnarsdóttir Klara Öfjörð Sigfúsdóttir
Eggert Valur Guðmundsson Viktor S. Pálsson
Tómas Ellert Tómasson Guðrún Jóhannsdóttir
Sigurjón Vídalín Guðmundsson Álfheiður Eymarsdóttir
Gunnar Egilsson Þórhildur Dröfn Ingvadóttir
Brynhildur Jónsdóttir Magnús Gíslason
Kjartan Björnsson Karolina Zoch
Ari Björn Thorarensen Helga Þórey Rúnarsdóttir
Sveinn Ægir Birgisson Axel Ingi Viðarsson
Samþykkt samhljóða.
- Fulltrúi í Almannavarnanefnd Árnessýslu, einn fulltrúi og einn til vara.
Aðalmaður: Varamaður:
Sólveig Þorvaldsdóttir Tómas Ellert Tómasson
Samþykkt samhljóða.
- Fulltrúaráð Eignarhaldsfélags Brunabótafélags Íslands, einn fulltrúi og einn til vara.
Aðalmaður: Varamaður:
Eggert Valur Guðmundsson Sigurjón Vídalín Guðmundsson
Samþykkt samhljóða.
- Fulltrúaráð Héraðsnefndar Árnesinga, níu fulltrúar og níu til vara.
Aðalmenn: Varamenn:
Helgi S. Haraldsson Sólveig Þorvaldsdóttir
Egget Valur Guðmundsson Klara Öfjörð Sigfúsdóttir
Arna Ír Gunnarsdóttir Viktor S. Pálsson
Tómas Ellert Tómasson Guðrún Jóhannsdóttir
Sigurjón Vídalín Guðmundsson Álfheiður Eymarsdóttir
Gunnar Egilsson Sveinn Ægir Birgisson
Brynhildur Jónsdóttir Þórhildur Dröfn Ingvadóttir
Kjartan Björnsson Magnús Gíslason
Ari Björn Thorarensen Karolina Zoch
Samþykkt samhljóða.
- Landsþing Sambands ísl. sveitarfélaga, fjórir fulltrúar og fjórir til vara.
Aðalmenn: Varamenn:
Arna Ír Gunnarsdóttir Helgi S. Haraldsson
Tómas Ellert Tómasson Sigurjón Vídalín Guðmundsson
Gunnar Egilsson Kjartan Björnsson
Brynhildur Jónsdóttir Ari Björn Thorarensen
Samþykkt samhljóða.
- Samstarfsnefnd með starfsmannafélögum, tveir fulltrúar og tveir til vara.
Aðalmenn: Varamenn:
Arna Ír Gunnarsdóttir Helgi S. Haraldsson
Gunnar Egilsson Kjartan Björnsson
Samþykkt samhljóða.
- Aðalfundur Eignarhaldsfélags Suðurlands, einn fulltrúi og einn til vara skv. gildandi samningi um félagið.
Aðalmaður: Varamaður:
Helgi S. Haraldsson Tómas Ellert Tómasson
Samþykkt samhljóða.
- Aðalfundur Leigubústaða Árborgar ehf, einn fulltrúi og einn til vara.
Aðalmaður: Varamaður:
Helgi S. Haraldsson Eggert Valur Guðmundsson
Samþykkt samhljóða.
- Aðalfundur Leigubústaða Árborgar ses, einn fulltrúi og einn til vara.
Aðalmaður: Varamaður:
Helgi S. Haraldsson Eggert Valur Guðmundsson
Samþykkt samhljóða.
- Aðalfundur Bergrisans bs, ellefu fulltrúar og ellefu til vara.
Aðalmenn: Varamenn:
Helgi S. Haraldsson Guðbjörg Jónsdóttir
Sólveig Þorvaldsdóttir Inga Jara Jónsdóttir
Arna Ír Gunnarsdóttir Klara Öfjörð Sigfúsdóttir
Eggert Valur Guðmundsson Viktor S. Pálsson
Tómas Ellert Tómasson Guðrún Jóhannsdóttir
Sigurjón Vídalín Guðmundsson Álfheiður Eymarsdóttir
Gunnar Egilsson Þórhildur Dröfn Ingvadóttir
Brynhildur Jónsdóttir Magnús Gíslason
Kjartan Björnsson Karolina Zoch
Ari Björn Thorarensen Helga Þórey Rúnarsdóttir
Sveinn Ægir Birgisson Axel Ingi Viðarsson
Samþykkt samhljóða.
- Aðalfundur Sandvíkurseturs ehf, einn fulltrúi og einn til vara.
Aðalmaður: Varamaður:
Eggert Valur Guðmundsson Helgi S. Haraldsson
Samþykkt samhljóða.
- Aðalfundur Borgarþróunar ehf, einn fulltrúi og einn til vara.
Aðalmaður: Varamaður:
Arna Ír Gunnarsdóttir Sigurjón Vídalín Guðmundsson
Samþykkt samhljóða.
- Aðalfundur Fasteignafélags Árborgar ehf, einn fulltrúi og einn til vara.
Aðalmaður: Varamaður:
Tómas Ellert Tómasson Sigurjón Vídalín Guðmundsson
Samþykkt samhljóða.
- Aðalfundur Fasteignafélags Árborgar slf, einn fulltrúi og einn til vara.
Aðalmaður: Varamaður:
Tómas Ellert Tómasson Arna Ír Gunnarsdóttir
Samþykkt samhljóða.
- Aðalfundur Verktækni ehf, einn fulltrúi og einn til vara.
Aðalmaður: Varamaður:
Sigurjón Vídalín Guðmundsson Arna Ír Gunnarsdóttir
Samþykkt samhljóða.
- Þjónustuhópur aldraðra, tveir fulltrúar sem hafa þekkingu á félagslegri þjónustu við aldraða.
Guðlaug Jóna Hilmarsdóttir og Ester Halldórsdóttir
Samþykkt samhljóða.
VIII. Fundargerðir til staðfestingar.
1. a) 146. fundur bæjarráðs ( 1801001 ) frá 17. maí
2. a) 1801003
Fundargerð fræðslunefndar 44. fundur frá 15. maí
b) 1801006
Fundargerð skipulags- og byggingarnefndar 53. fundur frá 23. maí
c) 1801005
Fundargerð framkvæmda- og veitustjórnar 53. fundur frá 16. maí
d) 1801004
Fundargerð félagsmálanefndar 35. fundur frá 22. maí
e) 1801008
Fundargerð íþrótta- og menningarnefndar 40. fundur frá 24. maí
f) 147. fundur bæjarráðs ( 1801001 ) frá 24. maí
Úr 146. fundargerð bæjarráðs til afgreiðslu:
- liður 4, málsnr. 18051504 – Gervigrasvöllur við Vallaskóla – Eikatún. Bæjarráð samþykkir viðbótarfjárveitingu að fjárhæð 1 mkr. til að skipta um gervigras á Eikatúni, til viðbótar þeim 8,5 mkr. sem eru í áætlun ársins, til þess að unnt verði að fjarlægja malbiksrönd meðfram vellinum og leggja gervigrasið að girðingu umhverfis völlinn. Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykktur verði viðauki við fjárhagsáætlun vegna málsins.
- liður 5, málsnr. 18051074 – Fjölgun stöðugilda hjá skólaþjónustu Árborgar – Fjölgun stöðugilda hjá skólaþjónustu Árborgar. Beiðni fræðslustjóra um viðbótarstöðugildi sálfræðings í skólaþjónustu Árborgar.
Bæjarráð samþykkir að ráðið verði í eitt stöðugildi sálfræðings til viðbótar við þau tvö sem fyrir eru hjá skólaþjónustu Árborgar frá 1. nóvember 2018 í samræmi við beiðni fræðslustjóra. Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykktur verði viðauki við fjárhagsáætlun að fjárhæð 1,5 mkr. vegna kostnaðarauka á árinu 2018. |
Úr fundargerð fræðslunefndar samanber 147. fund bæjarráðs til afgreiðslu:
- liður 2, málsnr. 1804177 - Beiðni um endurnýjun stöðugildis deildarstjóra Vallaskóla. Bæjarráð samþykkir að ráðinn verði deildarstjóri frá og með 1. ágúst nk. Lagt er til við bæjarstjórn að samþykktur verði viðauki við fjárhagsáætlun vegna þessa að fjárhæð 3,9 mkr.
- liður 8, málsnr. 1802031 - Fundargerð hverfisráðs Sandvíkurhrepps, skólaakstur í dreifbýli. Bæjarráð samþykkir breytt fyrirkomulag og leggur til við bæjarstjórn að samþykktur verði viðauki við fjárhagsáætlun að fjárhæð 1 mkr. vegna aukins aksturs.
- liður 1 a) Fundargerð bæjarráðs frá 17. maí, liður 4, málsnr. 18051504 – Gervigrasvöllur við Vallaskóla – Eikatún. Beiðni um 1. mkr. viðbótarfjárveitingu vegna endurnýjunar á gervigrasi á Eikatúni, sparkvelli við Vallaskóla. Bæjarráð samþykkir viðbótarfjárveitingu að fjárhæð 1 mkr. til að skipta um gervigras á Eikatúni, til viðbótar þeim 8,5 mkr. sem eru í áætlun ársins, til þess að unnt verði að fjarlægja malbiksrönd meðfram vellinum og leggja gervigrasið að girðingu umhverfis völlinn. Lagt er til að samþykktur verði viðauki við fjárhagsáætlun vegna málsins.
Tillagan var borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða.
- liður 1 a) Fundargerð bæjarráðs frá 17. maí, liður 5, málsnr. 18051074 – Fjölgun stöðugilda hjá skólaþjónustu Árborgar. Beiðni fræðslustjóra um viðbótarstöðugildi sálfræðings í skólaþjónustu Árbogar. Bæjarráð samþykkir að ráðið verði í eitt stöðugildi sálfræðings til viðbótar við þau tvö sem fyrir eru hjá skólaþjónustu Árborgar frá 1. nóvember 2018 í samræmi við beiðni fræðslustjóra. Lagt er til að samþykktur verði viðauki við fjárhagsáætlun að fjárhæð 1,5 mkr. vegna kostnaðarauka á árinu 2018.
Tillagan var borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða.
- liður 2 e) Kjartan Björnsson, D-lista, tók til máls um fundargerð íþrótta- og menningarnefndar frá 24. maí, lið 1, málsnr. 18051697 – 17. Júní hátíðarhöld á Selfossi 2018.
Arna Ír Gunnarsdóttir, S-lista tók til máls.
- liður 2 d) Arna Ír Gunnarsdóttir, S-lista, tók til máls um fundargerð félagsmálanefndar frá 22. maí, lið 7, málsnr. 18051680 – Snemmtæk íhlutun.
Ari Björn Thorarensen, D-lista, tók til máls.
- liður 2 e) Kjartan Björnsson, D-lista, tók til máls um fundargerð íþrótta- og menningarnefndar frá 24. maí, lið 2, málsnr. 18051713 – Byggðaskilti við hvern byggðarkjarna í Árborg.
- liður 2 a) Fundargerð fræðslunefndar frá 15. maí, liður 2, málsnr. 1804177 - Beiðni um endurnýjun stöðugildis deildarstjóra Vallaskóla. Bæjarráð samþykkir að ráðinn verði deildarstjóri frá og með 1. ágúst nk. Lagt er til að samþykktur verði viðauki við fjárhagsáætlun vegna þessa að fjárhæð 3,9 mkr.
Tillagan var borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða.
- liður 2 a) Fundargerð fræðslunefndar frá 15. maí, liður 8, málsnr. 1802031 - Fundargerð hverfisráðs Sandvíkurhrepps, skólaakstur í dreifbýli. Bæjarráð samþykkir breytt fyrirkomulag. Lagt er til að samþykktur verði viðauki við fjárhagsáætlun að fjárhæð 1 mkr. vegna aukins aksturs.
Arna Ír Gunnarsdóttir, S-lista, tók til máls.
Tillagan var borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða.
Fundargerðirnar voru bornar undir atkvæði og samþykktar samhljóða að undanskildum þeim liðum sem áður höfðu verið samþykktir.
IX. 1806083
Tillaga um fyrirkomulag funda bæjarstjórnar í júlí og ágúst og að bæjarráði verði falin fullnaðarafgreiðsla mála
Með vísan til heimildar í 8. gr. samþykktar um stjórn Sveitarfélagsins Árborgar og fundarsköp er lagt til að reglulegur fundur bæjarstjórnar í júlí verði felldur niður og bæjarstjórnarfundur í ágúst verði haldinn 15. ágúst. Þá er lagt til að bæjarráði verði falin fullnaðarafgreiðsla mála til sama tíma.
Tillagan var borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða.
X. 1806083
Tillaga um að bæjarráði verði falin útfærsla fundartíma í sumar
Lagt var til að vísa útfærslu á fundartíma í sumar til bæjarráðs.
Tillagan var borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða.
XI. 18051486
Íbúakosning um miðbæjarskipulag
Helgi S. Haraldsson, forseti bæjarstjórnar, lagði fram eftirfarandi tillögu:
Lagt er til að niðurstaða úr fyrirhugaðri íbúakosningu um breytingu á aðalskipulagi og deiliskipulagi fyrir miðbæinn á Selfossi verði bindandi fyrir ákvörðun bæjarstjórnar um framhald málsins. Þessi binding bæjarstjórnar nær eingöngu til málsins ef að lágmarki 29% kjörgengra íbúa tekur þátt í kosningunni. Ef hins vegar færri en 29% íbúa taka þátt í kosningunni verður niðurstaðan ráðgefandi fyrir endanlega ákvörðun bæjarstjórnar.
Tillagan var borin undir atkvæði og samþykkt með 5 atkvæðum bæjarfulltrúa Á-, B-, M- og S-lista, bæjarfulltrúar D-lista, sátu hjá.
XII. 1806094
Breyting á samþykktum um stjórn og fundarsköp Sveitarfélagsins Árborgar – fyrri umræða
Helgi S. Haraldsson, forseti bæjarstjórnar, fór yfir tillögur um breytingar á samþykktum um stjórn og fundarsköp Sveitarfélagsins Árborgar.
Ari Björn Thorarensen, D-lista, tók til máls og lagði fram eftirfarandi tillögu bæjarfulltrúa D-lista:
Bæjarfulltrúar D-lista, leggja til að breytingar á samþykktum sveitarfélagsins verði vísað frá.
Greinagerð:
Jafnframt eru bæjarfulltrúar D-lista tilbúnir í samstarfi við aðra flokka að endurskoða samþykktir sveitarfélagsins og verði því verkefni lokið fyrir áramót.
Tillaga D-lista var borin undir atkvæði og felld með fimm atkvæðum bæjarfulltrúa Á- B- M- og S- lista gegn fjórum atkvæðum bæjarfulltrúa D-lista.
Lagt er til að breytingum á samþykktum um stjórn og fundarsköp verði vísað til síðari umræðu var það samþykkt með 5 atkvæðum bæjarfulltrúa Á-, B-, M- og S-lista, bæjarfulltrúar D-lista, sátu hjá.
XIII. 1806093
Ráðning framkvæmdastjóra
Helgi S. Haraldsson, forseti bæjarstjórnar lagði fram eftirfarandi tillögu um ráðningu á framkvæmdastjóra
Lagt er til að Sveitarfélagið Árborg auglýsi eftir framkvæmdastjóra til starfa fyrir sveitarfélagið. Kostnaður vegna ráðningarferilsins er vísað til viðauka við fjárhagsáætlun.
Tillagan var borin undir atkvæði og samþykkt með fimm atkvæðum bæjarfulltrúa Á-, B-, M- og S-lista, bæjarfulltrúar D-lista, sátu hjá.
Fleira ekki gert. Fundargerðin lesin upp og fundi slitið kl. 18:05
Helgi Sigurður Haraldsson Eggert Valur Guðmundsson
Arna Ír Gunnarsdóttir Tómas Ellert Tómasson
Sigurjón Vídalín Guðmundsson Gunnar Egilsson
Brynhildur Jónsdóttir Kjartan Björnsson
Ari Björn Thorarensen Rósa Sif Jónsdóttir, ritari