Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


19.7.2018

1. fundur félagsmálanefndar

1. fundur félagsmálanefndar Árborgar, kjörtímabilið 2018-2022, haldinn fimmtudaginn 12. júlí 2018 í Norðursal, Ráðhúsi Árborgar, Austurvegi 2, Selfossi, kl. 17:00.  Mætt: Eggert Valur Guðmundsson, formaður, S-lista Inga Jara Jónsdóttir, nefndarmaður, B-lista Eyrún Björg Magnúsdóttir, nefndarmaður, Á-lista Helga Þórey Rúnarsdóttir, nefndarmaður, D-lista Jóna S. Sigurbjartsdóttir, varamaður, D-lista Guðlaug Jóna Hilmarsdóttir, félagsmálastjóri Anný Ingimarsdóttir, verkefnisstjóri félagslegrar ráðgjafar  Formaður leitar afbrigða til að taka mál nr. 1807069 og 1807070 á dagskrá og er það samþykkt samhljóða. Guðlaug Jóna Hilmarsdóttir ritar fundargerð. Dagskrá: 
Almenn afgreiðslumál
1.   1807042 - Kjör varaformanns fyrir kjörtímabilið 2018 - 2022
  Eyrún Björg Magnúsdóttir kjörin varaformaður.
     
2.   1807043 - Þagnarskylda fyrir kjörna fulltrúa 2018 - 2022
  Nefndarmenn undirrita þagnarskyldu
     
3.   1807069 - Undirritun siðareglna í félagsmálanefnd kjörtímabilið 2018-2022
  Nefndarmenn undirrita siðareglur
     
4.   1301216 - Reglur um verkaskiptingu milli félagsmálanefndar Árborgar og starfsmanna félagsþjónustu Árborgar 2013
  Félagsmálastjóri og verkefnisstjóri félagslegrar ráðgjafar fóru yfir reglurnar og málaflokka sviðsins.
     
6.   1702224 - Barnaverndarmál - trúnaðarmál
  Trúnaðarmál fært í trúnaðarmálabók
     
7.   1806139 - Ný og breytt lög um félagsþjónustu sveitarfélaga - öldungaráð og þjónustuhópur aldraðra
  Ný og breytt lög um félagsþjónustu sveitarfélaga taka gildi þann 1. október nk. Meðal nýmæla er að öldungráð taki við því hlutverki sem þjónustuhópur aldraðra hefur fram til þessa verið falið að sinna. Kjör á fulltrúum sveitarfélags í öldungaráði mun fara fram þegar samþykktir hafa verið endurskoðaðar en að lágmarki skulum sitja þrír fulltrúar kosnir af sveitarstjórn að loknum sveitarstjórnarkosningum og þrír fulltrúar tilnefndir af félagi eldri borgara, auk eins fulltrúa frá heilsugæslunni. Félagsmálanefnd felur félagsmálastjóra að endurskoða samþykktir Sveitarfélagsins Árborgar fyrir Öldungaráð og leggja fram á næsta fund félagsmálanefndar. Varðandi samráðshóp um málefni fatlaðs fólks er tilnefningum vísað til Bergrisans bs.
     
Erindi til kynningar
5.   1807070 - Kynning - erindisbréf félagsmálanefndar
  Erindisbréf félagsmálanefndar kynnt og félagsmálastjóra falið að endurskoða erindisbréfið og leggja til breytingar fyrir næsta fund nefndarinnar.
     
Fundargerð lesin upp og fundi slitið kl: 18:20 Eggert Valur Guðmundsson Inga Jara Jónsdóttir Eyrún Björg Magnúsdóttir Helga Þórey Rúnarsdóttir Jóna S. Sigurbjartsdóttir Guðlaug Jóna Hilmarsdóttir Anný Ingimarsdóttir  

Þetta vefsvæði byggir á Eplica