Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


8.5.2015

10. fundur skipulags- og byggingarnefndar

10. fundur skipulags- og byggingarnefndar Árborgar, kjörtímabilið 2014-2018, haldinn miðvikudaginn 6. maí 2015 að Austurvegi 67, Selfossi, kl. 08:10.  Mætt: Ásta Stefánsdóttir, formaður, D-lista, Magnús Gíslason, nefndarmaður, D-lista, Gísli Á. Jónsson, nefndarmaður, D-lista, Guðlaug Einarsdóttir, nefndarmaður, S-lista, Ragnar Geir Brynjólfsson, nefndarmaður, B-listA, Bárður Guðmundsson, skipulags- og byggingafulltrúi, Ástgeir Rúnar Sigmarsson, aðstoðarbyggingafulltrúi. Dagskrá: 
Erindi til kynningar
1. 1504330 - Kynning á fyrirhugaðri breytingu á deiliskipulagi að Austurvegi 39-41 Selfossi
Lagt fram til kynningar.
Almenn afgreiðslumál
2. 1504245 - Fyrirspurn um breytt skipulag lóðar að Gagnheiði 41 Selfossi
Erindi hafnað þar sem það samræmist ekki gildandi skipulagi. Guðlaug Einarsdóttir vék af fundi við afgreiðslu málsins.
3. 1405411 - Tillaga að deiliskipulagi að Austurvegi 51-59, Selfossi. Tillagan hefur verið auglýst og athugasemdir borist
Skipulags- og byggingarfulltrúa og lögmanni sveitarfélagsins falið að gera tillögu að svörum við athugasemdum.
4. 1502006 - Tillaga að breyttu deiliskipulagi að Austurvegi 69, Selfossi. Tillagan hefur verið auglýst og engar athugasemdir borist.
Lagt er til við bæjarstjórn að tillagan verði samþykkt.
5. 1502005 - Tillaga að breyttu deiliskipulagi við Hótel Selfoss Eyravegi 2 Selfossi. Tillagan hefur verið auglýst og engar athugasemdir borist.
Lagt er til við bæjarstjórn að tillagan verði samþykkt.
6. 1504327 - Tillaga að deiliskipulagsbreytingu að Hulduhól Eyrarbakka
Lagt er til við bæjarstjórn að tillagan verði auglýst og kynnt.
7. 1407045 - Kortlagning hávaða. Aðgerðaráætlun
Lagt er til við bæjarstjórn að áætlunin verði samþykkt.
8. 1503307 - Umsókn um lóðina Gagnheiði 63, Selfossi, áður á fundi 8. apríl sl. Umsækjandi: Eðalbyggingar ehf.
Samþykkt að úthluta lóðinni.
9. 1504319 - Fyrirspurn um að sameina lóðirnar Smáraland 10 og Smáraland 12 í eina parhúsalóð. Umsækjandi: Vörðuland ehf.
Samþykkt að setja erindið í grenndarkynningu.
10. 1504323 - Fyrirspurn um breytt afnot af 3. og 4. hæð í turni Hótels Selfoss, Eyravegi 2 Selfossi. Umsækjandi: Turninn 800 ehf.
Nefndin tekur jákvætt í erindið en bendir á að samþykki meðeiganda þarf fyrir breytingunum.
11. 1504321 - Umsókn um breytta notkun að Tryggvagötu 18, Selfossi, efri hæð í bílskúr. Umsækjandi: Einar Rúnar Einarsson
Samþykkt.
12. 1504271 - Óskað er umsagnar um rekstrarleyfi fyrir gististað í flokki I að Tryggvagötu 18, Selfossi. Umsækjandi: Sýslumaðurinn á Suðurlandi
Samþykkt að veita jákvæða umsögn.
13. 1504329 - Fyrirspurn um breytt skipulag á lóð að Hásteinsvegi 30, Stokkseyri. Fyrirspyrjandi: Valdimar Erlingsson
Skipulags- og byggingarnefnd getur ekki fallist á þær hugmyndir sem koma fram í erindinu.
14. 1504009F - Afgreiðslunefnd byggingarfulltrúa - 6
14.1. 1504063 - Umsókn um byggingarleyfi fyrir bílskúr að Grashaga 10 Selfossi. Umsækjandi: Bjarki Áskelsson og Ingibjörg Blaka Hreggviðsdóttir
Samþykkt með fyrirvara um samþykki meðeiganda bílgeymslu.
14.2. 1504326 - Umsókn um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu að Suðurbraut 14. Umsækjandi: Renuka Chareyre Perera og Jean-Rémi Chareyre
Samþykkt.
14.3. 1504244 - Umsókn um byggingarleyfi fyrir parhúsi að Stekkjarlandi 2-4, Selfossi. Umsækjandi: Hannes Þór ehf
Samþykkt.
14.4. 1505033 - Umsókn um byggingarleyfi fyrir klórgeymslu við Sundlaug að Stjörnusteinum 1a. Umsækjandi: Sveitarfélagið Árborg
Samþykkt.
14.5. 1504322 - Umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingu á gluggum að Hásteinsvegi 15, Stokkseyri. Umsækjandi: Eggert Sigurþór Guðlaugsson og Móeiður Ágústsdóttir
Samþykkt með fyrirvara um að stærð björgunaropa standist kröfu byggingarreglugerðar.
14.6. 1504328 - Fyrirspurn um byggingarleyfi fyrir smáhýsi að Seftjörn 13, Selfossi
Samþykkt með fyrirvara um samþykki nágranna.
14.7. 1504325 - Umsókn um stöðuleyfi fyrir skúr að Túngötu 44b, Eyrarbakka. Umsækjandi: Dorothee Lubecki.
Samþykkt að veita stöðuleyfi til 15.06.2015 með fyrirvara um að skúrinn verði staðsettur a.m.k. 3 metra frá lóðarmörkum.
14.8. 1504067 - Beiðni um umsögn á endurnýjuðu leyfi til reksturs gististaðar í flokki I að Þykkvaflöt 4 Eyrarbakka. Umsækjandi: Sigríður Soffía Gunnarsdóttir
Samþykkt að veita jákvæða umsögn.
  Fundargerð lesin upp og fundi slitið kl: 09:30
Ásta Stefánsdóttir Magnús Gíslason
Gísli Á. Jónsson Guðlaug Einarsdóttir
Ragnar Geir Brynjólfsson Bárður Guðmundsson
Ástgeir Rúnar Sigmarsson
 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica