101. fundur bæjarráðs
101. fundur bæjarráðs Árborgar, kjörtímabilið 2010-2014, haldinn fimmtudaginn 5. júlí 2012 í Setri Egils, Ráðhúsi Árborgar, Austurvegi 2, Selfossi, kl. 08:10.
Mætt: Eyþór Arnalds, formaður, D-lista, Ari B. Thorarensen, varamaður, D-lista, Eggert Valur Guðmundsson, bæjarfulltrúi, S-lista, Íris Böðvarsdóttir, varamaður, áheyrnarfulltrúi, B-lista, Þórdís Eygló Sigurðardóttir, áheyrnarfulltrúi, V-lista, Ásta Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri Sveitarfélagsins Árborgar, sem ritaði fundargerð.
Formaður leitaði afbrigða að taka á dagskrá 37. fundargerð framkvæmda- og veitustjórnar frá 4. júlí og svar frá Íbúðalánasjóði vegna leigumála. Var það samþykkt samhljóða.
Dagskrá:
|
1. |
1201024 - Fundargerð skipulags- og byggingarnefndar |
||||
|
25. fundur haldinn 12. júní |
|||||
|
Fundargerðin staðfest. |
|||||
|
|
|||||
|
2. |
1201020 - Fundargerð framkvæmda- og veitustjórnar |
||||
|
36. fundur haldinn 20. júní 37. fundur haldinn 4. júlí |
|||||
|
37. fundur, - liður 1, málsnr. 1206171, aðveituæð hitaveitu frá Þorleifskoti að miðlunartanki, bæjarráð samþykkir að flýta fjárveitingu til tvöföldunar aðveitulagnar í samræmi við erindið eins og þörf er á.
Fundargerðirnar staðfestar. |
|||||
|
|
|||||
|
3. |
1206108 - Fundagerð fulltrúaráðs Brunavarna Árnessýslu |
||||
|
89. fundur haldinn 15. júní |
|||||
|
Fundargerðin lögð fram. |
|||||
|
|
|||||
|
4. |
1206149 - Erindi frá íbúum í Gráhelluhverfi vegna gatnamála |
||||
|
Sveitarfélagið hefur sent Íslandsbanka hugmynd að úrlausn málsins, vonast er til að svör liggi fyrir fljótlega. |
|||||
|
|
|||||
|
5. |
1206149 - Beiðni fulltrúa S-lista um upplýsingar um stöðu mála í Gráhelluhverfi |
||||
|
Farið var yfir stöðu málsins. |
|||||
|
|
|||||
|
6. |
1206134 - Beiðni um framlengingu á samningi við Tónkjallarann |
||||
|
Bæjarráð samþykkir að framlengja samning við Tónkjallarann ehf miðað við sex nemendagildi. |
|||||
|
|
|||||
|
7. |
1206008 - Svar við fyrirspurn um upplýsingar um leikskólabiðlista |
||||
|
Lagt var fram eftirfarandi svar við fyrirspurn Eggerts Vals Guðmundssonar, S-lista. Á fundi bæjarráðs fimmtudaginn 14. júní 2012 var spurt um hversu mörg börn 18 mánaða og eldri með lögheimili í sveitarfélaginu og hafa fengið vilyrði fyrir leikskólaplássi eru að bíða eftir að komast inn á leikskóla? Úthlutuð leikskólapláss fyrir börn 18 mánaða og eldri, sem úthlutað var nú í vor, eru eftirfarandi: 100 börn sem eiga lögheimili í Árborg og eru 18 mánaða og eldri hafa fengið úthlutað leikskólaplássi vorið 2012 en munu byrja skólagöngu sína eftir sumarleyfi leikskólanna. Nokkur hafa nú þegar hafið skólagöngu en skólabyrjun annarra verður væntanlega í ágúst og september nk. Leikskólastjórar hafa haldið kynningarfundi fyrir foreldra barnanna í hverjum leikskóla en deildarstjórar munu kalla foreldra hvers barns í viðtal við upphaf skólagöngunnar. Eðlilega munu ekki öll börnin byrja á sama tíma þar sem hvert barn þarf sérstaka aðlögun. Til frekari upplýsinga þá gera innritunarreglur Sveitarfélagsins Árborgar ráð fyrir því að börn hafi forgang í leikskóla sem eru fædd 2007, 2008, 2009 og 2010. Einnig er tekið fram í reglunum að úthlutun leikskólaplássa fari fram að vori. Þá kemur fram í innritunarreglunum að heimilt er að taka allt að 18 mánaða gömul börn inn í leikskólana ef aðstæður leyfa. Hins vegar eru aðstæður þannig núna að búið er að bjóða 36 börnum yngri en 18 mánaða leikskólapláss og mun skólabyrjun þeirra vera á tímabilinu september-október 2012, allt eftir aðstæðum hvers leikskóla. Þorsteinn Hjartarson, fræðslustjóri
Eggert Valur Guðmundsson, S-lista, þakkar fyrir ítarleg svör. |
|||||
|
|
|
||||
|
8. |
1109179 - Beiðni umhverfisráðuneytisins um athugasemdir við landsáætlun um meðhöndlun úrgangs 2012-2023 |
||||
|
Lagt fram. |
|||||
|
|
|||||
|
9. |
1206160 - Fyrirspurn um styrk til handknattleiksdeildar Umf. Selfoss vegna góðs árangurs. |
||||
|
Bæjarráð sér sér ekki fært að verða við erindinu. Sveitarfélagið styrkir handknattleiksdeildina með rekstrarstyrkjum og myndarlegum framlögum til uppbyggingar mannvirkja. |
|||||
|
|
|||||
|
10. |
1201125 - Minnisblað vegna kaupa á rakatæki vegna endurbóta á gólfi í íþróttahúsi Vallaskóla |
||||
|
Bæjarráð þakkar upplýsingarnar og óskar eftir að raki verði mældur í húsinu í vetur, ákvörðun um kaup á rakatæki verði tekin þegar þær upplýsingar liggja fyrir. |
|||||
|
|
|||||
|
11. |
1207001 - Beiðni fulltrúa S-lista um umræður um málefni sundlauga á Selfossi og Stokkseyri |
||||
|
Frestað til næsta fundar. |
|||||
|
|
|||||
|
12. |
1205038 - Staða á leigumarkaði, svar Íbúðalánasjóðs við fyrirspurn um leigu á húsnæði sjóðsins |
||||
|
Lagt var fram tölvubréf frá Íbúðalánasjóði þar sem fram kemur að Íbúðalánasjóður muni ekki setja íbúðir í leigu á Selfossi. Bæjarráð lýsir yfir miklum vonbrigðum með þá afstöðu Íbúðalánasjóðs að bjóða ekki lausar íbúðir til leigu á almennum leigumarkaði, mikil eftirspurn er eftir leiguhúsnæði og skortur á slíku húsnæði. Almennur vilji er hjá stjórnvöldum og sveitarfélögum að leigumarkaður verði efldur og er þetta þvert á þá stefnu. Fullyrðingar um markaðsráðandi stöðu á leigumarkaði vekja furðu og óskar bæjarráð eftir tölulegum upplýsingum um málið og hversu margar íbúðir hafa verið auglýstar til leigu á svæðinu. |
|||||
|
|
|||||
|
13. |
1206130 - Erindi frá fjárlaganefnd, fundir sveitarstjórna og fjárlaganefndar alþingis |
||||
|
Lagt fram. Bæjarráð óskar eftir upplýsingum frá fjárlaganefnd um ástæður óreglulegra greiðslna á útsvari. |
|||||
|
|
|||||
|
14. |
1204185 - Erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga - Úthlutun úr námsgagnasjóði 2012 |
||||
|
Lagt fram. |
|||||
|
|
|||||
Fundargerð lesin upp og fundi slitið kl: 9:55.
Eyþór Arnalds |
|
Ari B. Thorarensen |
Eggert V. Guðmundsson |
|
Íris Böðvarsdóttir |
Þórdís Eygló Sigurðardóttir |
|
Ásta Stefánsdóttir |