11.1.2019
11. fundur skipulags- og byggingarnefndar
11. fundur skipulags- og byggingarnefndar Árborgar, kjörtímabilið 2018-2022, haldinn miðvikudaginn 19. desember 2018 að Austurvegi 67, Selfossi, kl. 08:10.
Mætt:
Sigurjón Vídalín Guðmundsson, formaður, Á-lista
Guðrún Jóhannsdóttir, nefndarmaður, M-lista
Sigurður Þorvarðarson, nefndarmaður, S-lista
Ari B. Thorarensen, nefndarmaður, D-lista
Magnús Gíslason, nefndarmaður, D-lista
Bárður Guðmundsson, skipulags- og byggingarfulltrúi
Torfi Sigurðsson, lögmaður mætti á fundinn undir lið 1.
Dagskrá:
Erindi til kynningar |
1. |
1811232 - Minnisblað vegna heimagistingar og gistileyfa frá Lögmönnum Suðurlandi. Torfi Sigurðsson gerir grein fyrir minnisblaðinu. |
|
Torfi Sigurðsson, lögmaður, útskýrði minnisblað vegna heimagistingar og gistileyfa. Torfa var falið að afla frekari upplýsinga. |
|
|
Gestir |
|
Torfi Sigurðsson, lögmaður |
|
|
|
Almenn afgreiðslumál |
2. |
1812074 - Fyrirspurn til byggingarnefndar vegna deiliskipulags að Byggðarhorni 5, Sandvíkurhreppi.
Fyrirspyrjandi: Landform |
|
Skipulags- og byggingarfulltrúa falið að leita álits Skipulagsstofnunar á erindinu. |
|
|
|
3. |
1807027 - Heimild fyrir deilskipulagi á jörðinni Goðanesi |
|
Lagt er til við bæjarstjórn að deiliskipulagstillagan verði samþykkt. |
|
|
|
4. |
1812079 - Umsókn um byggingarleyfi að Urriðalæk 25, Selfossi.
Umsækjandi: Haukur Baldvinsson |
|
Skipulags- og byggingarfulltrúa falið að afla frekari gagna. |
|
|
|
5. |
1812060 - Fyrirspurn til byggingarnefndar vegna breytinga á bílskúr að Þórsmörk 2, Selfossi.
Fyrirspyrjendur: Ethna Parker og Christopher Parker |
|
Afgreiðslu frestað. Skipulags- og byggingarfulltrúa falið að afla frekari gagna. |
|
|
|
6. |
1811221 - Fyrirspurn til byggingarnefndar vegna breytinga á bílgeymslu að Vallholti 41, Selfossi.
Fyrirspyrjandi: Lína Björk Sigmundsdóttir |
|
Afgreiðslu frestað. Skipulags- og byggingarfulltrúa falið að afla frekari gagna. |
|
|
|
7. |
1812112 - Fyrirspurn til byggingarnefndar frá Sindra Má Guðbjörnssyni vegna uppsetningar á bílskýlum við Sílalæk 6-8, Selfossi |
|
Frestað. Skipulags- og byggingarfulltrúa falið að ræða við fyrirspyrjanda. |
|
|
|
8. |
1812114 - Fyrirspurn til byggingarnefndar vegna breyttrar starfsemi í húsinu að Vallholti 27, Selfossi. |
|
Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir fyrir sitt leyti breytta notkun húsnæðisins og leggur til við bæjarstjórn að samþykkja breytinguna. |
|
|
|
9. |
1812115 - Lögð fram frumdrög að hönnun hringtorgs, göngustíga og undirganga við Eyrarbakkaveg |
|
Kynntar voru tvær tillögur um undirgöng og hringtorg undir Eyrarbakkaveg við Suðurhóla. Óskað er eftir ítrarlegri gögnum svo að hægt verði að taka afstöðu til tillagnanna. |
|
|
|
Fundargerð lesin upp og fundi slitið kl: 10:10
Sigurjón Vídalín Guðmundsson |
|
Guðrún Jóhannsdóttir |
Sigurður Þorvarðarson |
|
Ari B. Thorarensen |
Magnús Gíslason |
|
Bárður Guðmundsson |
|
|
|