Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


15.6.2017

114. fundur bæjarráðs

114. fundur bæjarráðs Árborgar, kjörtímabilið 2014-2018 haldinn fimmtudaginn 15. júní 2017 í Setri Egils, Ráðhúsi Árborgar, Austurvegi 2, Selfossi, kl. 08:10  Mætt: Gunnar Egilsson, formaður, D-lista Kjartan Björnsson, bæjarfulltrúi, D-lista Arna Ír Gunnarsdóttir, bæjarfulltrúi, S-lista Eyrún Björg Magnúsdóttir, áheyrnarfulltrúi, Æ-lista Helgi Sigurður Haraldsson, áheyrnarfulltrúi, B-lista Ásta Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri Sveitarfélagsins Árborgar, sem ritaði fundargerð. Dagskrá: 
Fundargerðir til staðfestingar
1.   1701027 - Fundargerðir fræðslunefndar 2017
  33. fundur haldinn 8. júní
  Fundargerðin staðfest.
     
Fundargerðir til kynningar
2.   1702104 - Fundargerðir stjórnar SASS 2017 2-1702104
  520. fundur haldinn 31. maí
  Lagt fram til kynningar.
     
3.   1701105 - Fundargerðir BÁ 2017 3-1701105
  15. fundur haldinn 6. júní
  Lagt fram til kynningar.
     
4.   1704271 - Fundargerðir almannavarnanefndar Árnessýslu 2017 4-1704271
  24. fundur haldinn, 7. júní
  Fundargerðin lögð fram.
     
5.   1705226 - Fundargerðir Leigubústaða Árborgar ses 2017 5-1705226
  1. fundur 2017 haldinn 23. febrúar
  -bæjarráð samþykkir sölu á tveimur íbúðum, Álftarima 9, íbúð 401 og Álftarima 5, íbúð 203. Fundargerðin lögð fram.
     
Almenn afgreiðslumál
6.   1705375 - Kosning í embætti innan bæjarstjórnar 2017
  Kosnings formanns og varaformanns bæjarráðs
  Lagt var til að Gunnar Egilsson, D-lista, yrði formaður bæjarráðs og Kjartan Björnsson, D-lista, yrði varaformaður. Var það samþykkt samhljóða.
     
7.   1706066 - Beiðni um stöðugildi vegna forstöðumanns Bifrastar 7-1706066
  Lögð var fram beiðni skólastjóra Vallaskóla um aukið stöðugildi vegna forstöðumanns Bifrastar. Bæjarráð samþykkir að ráðinn verði umsjónarmaður Bifrastar frá og með næstu áramótum.
     
8.   1706068 - Íbúðir Íbúðalánasjóðs í Árborg boðnar sveitarfélaginu til kaups 8-1706068
  Lagt var fram erindi frá Íbúðalánasjóði, dags. 8. júní, þar sem óskað er eftir viðræðum við sveitarfélagið um möguleg kaup á fasteignum í eigu sjóðsins sem eru í sveitarfélaginu. Bæjarráð óskar eftir upplýsingum um hvaða eignir er um að ræða og verðlagningu þeirra.
     
9.   1706044 - Hvatning - samstarfsverkefni sveitarfélaga í uppgræðslu með seyru 9-1706044
  Erindi frá Landgræðslu ríkisins, dags. 7. júní þar sem óskað er eftir samstarfi við Árborg í uppgræðslu á seyru.
  Bæjarráð Árborgar samþykkir að taka þátt í viðræðum með öðrum sveitarfélögum sem erindið varðar um fyrirkomulag á förgun og nýtingu seyru.
     
10.   1706047 - Hefting á útbreiðslu lúpínu í Árborg 10-1706047
  Erindi Aldísar Sigfúsdóttur, dags. 8. júní, um heftingu útbreiðslu á lúpínu í sveitarfélaginu
  Bæjarráð óskar eftir því að umhverfisdeild Árborgar kortleggi vaxtarsvæði lúpínu í sveitarfélaginu og vísar erindinu til starfshóps um mótun umhverfisstefnu.
     
11.   1706063 - Samningur um málefni lóðarinnar Austurvegi 4
  Drög að samningi um málefni lóðarinnar Austurvegi 4
  Samningurinn var lagður fram til kynningar.
     
12.   1706064 - Samningur við Tónkjallarann ehf 12-1706064
  Fulltrúar Tónsmiðju Suðurlands mæta á fundinn
  Stefán Þorleifsson og Ingibjörg Erlingsdóttir komu á fund bæjarráðs og fylgdu eftir beiðni sinni um aukinn nemendakvóta, breytingu á fasteignagjöldum og samning til lengri tíma en eins árs í senn. Bæjarráð samþykkir að gera samning fyrir níu nemendur í stað sjö, samningurinn verði til fimm ára með uppsagnarákvæði. Fjármálastjóra sveitarfélagsins er falið að fara yfir álagningu fasteignaskatts á húsnæði Tónkjallarans. Bæjarráð samþykkir viðauka við fjárhagsáætlun vegna þess hluta námsgjalda sem falla á haustönn 2017.
     
13.   1706065 - Beiðni um aukinn kennslukvóta 13-1706065
  Lögð var fram beiðni Tónlistarskóla Árnesinga, dags. 6. júní, þar sem óskað er eftir auknum kennslukvóta sem nemur 10 klst. Bæjarráð óskar eftir kostnaðaráætlun frá fræðslustjóra.
     
14.   1706067 - Fyrirhuguð stækkun á Álfheimum 14-1706067
  Lagðar voru fram hugmyndir um fyrirhugaðar stækkanir á leikskólanum Álfheimum. Bæjarráð samþykkir að kanna kostnað við hönnun viðbyggingar við Álfheima.
     
Fundargerð lesin upp og fundi slitið kl. 9:45.  
Gunnar Egilsson   Kjartan Björnsson
Arna Ír Gunnarsdóttir   Eyrún Björg Magnúsdóttir
Helgi Sigurður Haraldsson    
Ásta Stefánsdóttir    
 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica