141. fundur bæjarráðs
141. fundur bæjarráðs Árborgar, kjörtímabilið 2010-2014, haldinn fimmtudaginn 23. maí 2013 í Setri Egils, Ráðhúsi Árborgar, Austurvegi 2, Selfossi, kl. 08:10.
Mætt: Eyþór Arnalds, formaður, D-lista, Sandra Dís Hafþórsdóttir, bæjarfulltrúi, D-lista, Eggert Valur Guðmundsson, bæjarfulltrúi, S-lista, Helgi Sigurður Haraldsson, áheyrnarfulltrúi, B-lista, Þórdís Eygló Sigurðardóttir, áheyrnarfulltrúi, V-lista, Ásta Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri Sveitarfélagsins Árborgar, sem ritaði fundargerð.
Formaður leitaði afbrigða að taka á dagskrá atvinnuátak sumarið 2013 fyrir 17-20 ára einstaklinga í Árborg. Var það samþykkt samhljóða.
Dagskrá:
Fundargerðir til kynningar |
||
1. |
1305122 - Aðalfundur Fasteignafélags Árborgar ehf |
|
Haldinn 15. maí |
||
Lagt fram. |
||
|
||
2. |
1305123 - Aðalfundur Fasteignafélags Árborgar slf |
|
Haldinn 15 maí |
||
Lagt fram. |
||
|
||
3. |
1305124 - Aðalfundur Leigubústaða Árborgar ehf |
|
Haldinn 15. maí |
||
Lagt fram. |
||
|
||
4. |
1305125 - Aðalfundur Sandvíkurseturs ehf |
|
Haldinn 15. maí |
||
Lagt fram. |
||
|
|
|
Almenn afgreiðslumál |
||
5. |
1304084 - Milliuppgjör 2013 |
|
Lagt fram. |
||
|
||
6. |
1305117 - Kótelettan 2013 |
|
Bæjarráð samþykkir að skemmtidagskrá fyrir fjölskyldur að degi til vegna hátíðarinnar Kótelettunnar verði haldin í miðbæjargarðinum og felur framkvæmdastjóra að ganga frá samkomulagi við hátíðarhaldara. |
||
|
||
7. |
1211151 - Samkomulag við Sjálfseignarstofnunina Tryggvaskála um frágang lóðar umhverfis Tryggvaskála |
|
Bæjarráð staðfestir samninginn. |
||
|
||
8. |
1305127 - Beiðni um ókeypis aðgang að Sundhöll Selfoss vegna Kvennahlaups ÍSÍ 2013 |
|
Bæjarráð samþykkir að þátttakendur í Kvennahlaupinu 8. júní fái frítt í sund. |
||
|
||
9. |
1305150 - Beiðni Sýslumannsins á Selfossi um umsögn um umsókn um rekstrarleyfi - Guest House, Búðarstíg 16b, Eyrarbakka |
|
Bæjarráð vísar erindinu til skipulags- og byggingarnefndar. |
||
|
||
10. |
1301338 - Heimsókn Kristjáns Einarssonar, slökkviliðsstjóra og framkvæmdastjóra almannavarnanefndar Árnessýslu |
|
Kristján Einarsson kom inn á fundinn, rætt var um viðbragðsáætlanir vegna eituráhrifa af eldgosum. Kristján upplýsti um tilraunaverkefni á vegum Veðurstofu Íslands og Jarðvísindastofnunar Háskóla Íslands með aðkomu Almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra vegna áhrifa eldgosa á heilsu fólks. Bæjarráð lýsir yfir ánægju með að sú vinna sé hafin og óskar eftir að fá að fylgjast með framvindunni. |
||
|
||
11. |
1305207 - Atvinnuátak fyrir 17-20 ára ungmenni sumarið 2013 |
|
Bæjarráð samþykkir viðbótarfjárveitingu til ráðningar ungmenna á aldrinum 17-20 ára í sumarstörf hjá sveitarfélaginu, kostnaði, kr. 10.230.000, er vísað til viðauka við fjárhagsáætlun.
Eggert Valur Guðmundsson, S-lista, lagði fram eftirfarandi bókun: „Undirritaður fagnar tillögu forstöðumanna þeirra sviða er varða atvinnumál ungs fólks á aldrinum 17 til 20 ára í sveitarfélaginu. Með þessari tillögu sýna þau Bragi Bjarnason, menningar- og frístundafulltrúi, Guðlaug Jóna Hilmarsdóttir, félagsmálastjóri og Jón Tryggvi Guðmundsson, yfirmaður framkvæmdasviðs, sjálfstæði í vinnubrögðum og frumkvæði er varða þeirra málaflokka. Undirritaður styður fyrirliggjandi tillögu forstöðumannanna er varðar atvinnuátaksverkefni fyrir ungt fólk sumarið 2013 í Svf. Árborg.“ Eggert Valur Guðmundsson, bæjarfulltrúi S lista. |
||
|
||
Erindi til kynningar |
||
12. |
1305149 - Ársskýrsla og ársreikningur Fræðslunets Suðurlands 2012 |
|
Lagt fram. |
||
|
||
13. |
1301099 - Yfirlit yfir niðurstöður umræðuhópa á landsþingi Sambands íslenskra sveitarfélaga 2013 |
|
Lagt fram. |
||
|
Fundargerð lesin upp og fundi slitið kl: 9:20.
Eyþór Arnalds |
|
Sandra Dís Hafþórsdóttir |
Eggert V. Guðmundsson |
|
Helgi Sigurður Haraldsson |
Þórdís Eygló Sigurðardóttir |
|
Ásta Stefánsdóttir |