144. fundur framkvæmda- og veitustjórnar
144. fundur framkvæmda- og veitustjórnar, kjörtímabilið 2006-2010 haldinn fimmtudaginn 20. desember 2007 að Austurvegi 67, Selfossi, kl. 17:00
Mætt:
Þorvaldur Guðmundsson, formaður, B-lista (B)
Sigurður Ingi Andrésson, nefndarmaður V-lista (V)
Guðni Torfi Áskelsson, nefndarmaður S-lista (S)
Snorri Finnlaugsson, nefndarmaður D-lista (D)
Ingvi Rafn Sigurðsson, varamaður D-lista
Jón Tryggvi Guðmundsson, starfandi framkvæmdastjóri
Rósa Sif Jónsdóttir, starfsmaður
JTG: Jón Tryggvi Guðmundsson starfandi framkvæmdastjóri.
Dagskrá:
•1. 0712069 - Gjaldskrá vatnsveitu
JTG kynnti gjaldskrá vatnsveitu.
Stjórnin felur JTG að koma á framfæri athugasemdum sem ræddar voru á fundinum.
•2. 0712068 - Gjaldskrá fráveitugjalda
JTG kynnti gjaldskrá fráveitu.
Stjórnin felur JTG að koma á framfæri athugasemdum sem ræddar voru á fundinum.
•3. 0712067 - Gatnagerðargjald - samþykkt
JTG kynnti gjaldskrá gatnagerðagjalda.
Stjórnin felur JTG að koma á farmfæri athugasemdum sem ræddar voru á fundinum.
•4. 0709125 - Afköst holu ÓS-2 skýrsla frá ÍSOR
JTG kynnti skýrslu ÍSOR um afköst holu ÓS-2 samkvæmt óstaðfestum afkastamælingum er talið að holan gefi 50-80 l/sek af 92°c heitu vatni.
Stemmt er að því að vinna að áframhaldandi rannsóknum á efnainnihaldi vatnsins í holu ÓS-2 og möguleikum á blöndum þess við annað hitaveitu vatn.
•5. 0710093 - Hitaveitulagnir í Eystra-Stokkseyrasel
JTG kynnti áætlaðan kostað fyrir vatnsveitu og hitaveitu að Eystra-Stokkseyraseli. Samkvæmt upplýsingum frá VST verður erfitt að uppfylla lágmarks vatnshita fyrr en með 50% uppbyggingu svæðisins, nema að umtalsverði blæðingu sé beitt.
•6. 0711124 - Þriggja fasa rafmagn á landsbyggðinni
Formaður kynnti bréf frá Iðnaðarráðuneyti varðandi þörf á þriggja fasa rafmagni í sveitarfélaginu.
Stjórnin felur JTG að afla upplýsinga frá dreifiveitum sveitarfélagsins og senda til Iðnaðarráðuneytis.
•7. 0705131 - Neysluvatnsöflun undir Ingólfsfjalli
JTG kynnti stöðu á neysluvatnsöflun við Ingólfsfjall. Fyrirhuguð er að gera dæluprófun á tilraunaholum fljótlega.
•8. 0705140 - Framkvæmdalisti 2007
JTG kynnti framkvæmdalista framkvæmda- og veitusviðs með samantekt sem lögð var fram á fundinum.
Fundargerð lesin upp og fundi slitið kl: 18:40
Þorvaldur Guðmundsson
Sigurður Ingi Andrésson
Guðni Torfi Áskelsson
Snorri Finnlaugsson
Ingvi Rafn Sigurðsson
Jón Tryggvi Guðmundsson
Rósa Sif Jónsdóttir