15. fundur félagsmálanefndar
15. fundur félagsmálanefndar Árborgar, kjörtímabilið 2010-2014 haldinn þriðjudaginn 14. febrúar 2012 í Setri Egils, Ráðhúsi Árborgar, Austurvegi 2, Selfossi, kl. 17:15
Mætt:
Ari B. Thorarensen, formaður, D-lista,
Ragnheiður Guðmundsdóttir, nefndarmaður D-lista,
Kristín Traustadóttir, varamaður D-lista,
Kristbjörg Gísladóttir, nefndarmaður V-lista,
Sandra D. Gunnarsdóttir, nefndarmaður S-lista,
Guðlaug Jóna Hilmarsdóttir. félagsmálastjóri,
Þórdís Kristinsdóttir (D) lista boðaði forföll og mætir Kristín Traustadóttir varamaður hennar.
Helga Lind Pálsdóttir, félagsráðgjafanemi, situr fundinn.
Dagskrá:
1. 1202271 - Barnaverndarmál - trúnaðarmál
Trúnaðarmál fært í trúnaðarbók
2. 1202267 - Húsnæðismál - trúnaðarmál
Trúnaðarmál fært í trúnaðarbók
3. 1202268 - Húsnæðismál - trúnaðarmál
Trúnaðarmál fært í trúnaðarbók
4. 1202269 - Húsnæðismál - trúnaðarmál
Trúnaðarmál fært í trúnaðarbók
5. 1202270 - Fjárhagsaðstoð - Trúnaðarmál
Trúnaðarmál fært í trúnaðarbók
6. 1201097 - Ferðaþjónusta lögblindra íbúa Árborgar um höfuðborgarsvæðið
Félagsmálanefnd samþykkir að veita lögblindum niðurgreiðslu á leigubílaakstri innan Reykjavíkur til að sækja félagsstarf hjá Blindrafélaginu. Félagsmálastjóra falið að semja við Blindrafélag Íslands út árið 2012.
7. 1112008 - Gjaldskrá félagslegrar heimaþjónustu
6. gr. Í gjaldskránni en hún er svohljóðandi í dag:
Notendur þjónustu dagvistar aldraðra í Sveitarfélaginu Árborg skulu greiða 875 króna daggjald í samræmi við ákvæði í reglugerð nr. 35/2011 um daggjöld dvalarheimila og dagvista og húsnæðisgjald vegna viðhalds öldrunarstofnana fyrir árið 2010.
Breytist á eftirfarandi hátt:
Notendur þjónustu dagvistar aldraðra í Sveitarfélaginu Árborg greiða daggjald í samræmi við ákvæði í núgildandi reglugerð um daggjöld dvalarheimila og dagvista og húsnæðisgjald vegna viðhalds öldrunarstofnana sem velferðarráðherra setur á hverju ári.
7.gr. Ný grein Akstur á vegum heimaþjónustunnar
Notandi greiðir fyrir hvern km sem starfsmaður ekur með eða fyrir notandann. Gjaldið er í samræmi við ákvarðanir Ferðakostnaðarnefndar fjármálaráðuneytis og tekur breytingum í samræmi við ákvarðanir nefndarinnar.
Breytist á eftirfarandi hátt:
Notendur þjónustu dagvistar aldraðra í Sveitarfélaginu Árborg greiða daggjald í samræmi við ákvæði í núgildandi reglugerð um daggjöld dvalarheimila og dagvista og húsnæðisgjald vegna viðhalds öldrunarstofnana sem velferðarráðherra setur á hverju ári.
8. 1202272 - Reglur um félagslegar leiguíbúðir og sérstakar húsaleigubætur í Sveitarfélaginu Árborg
Tillaga að breytingu um viðmiðunarmörk tekna við gerð matsblaðs um félagslegar leiguíbúðir og sérstakar húsaleigubætur í Sveitarfélaginu Árborg
Lagt er til að gerð verði breyting á viðmiðunartekjum við gerð mats um hvort einstaklingur hefur rétt á að vera á biðlista vegna félagslegs leiguhúsnæðis og vegna sérstakra húsaleigubóta, með þar til gerðu matsblaði.
Liður 3 á matsblaði hljómar svo:
Tekjur hærri en 2.269.701 0 stig
Tekjur á bilinu 1.815.761 - 2.269.701 1 stig
Tekjur undir 1.815.761 2 stig
Tillaga að breytingu:
Tekjur hærri en 2.632.622 0 stig
Tekjur á bilinu 2.106.131 - 2.632.622 1 stig
Tekjur undir 2.106.131 2 stig
9. 1201037 - Húsaleigubætur og félagslegar leiguíbúðir - uppreiknuð eignamörk 2012
Lagt fram til kynningar.
10. 1108086 - Jafnréttisáætlun og framkvæmdaáætlun
Sveitarfélagið hefur fengið frest til 1. apríl 2012. Ákveðið að stofna vinnuhóp með Ara Birni Thorarensen, Ragnheiði Guðmundsdóttur og félagsmálastjóra til að vinna drög fyrir jafnréttis- og framkvæmdaáætlun.
11. 1110156 - Styrkir vegna langveikra barna og barna með ADHD
Félagsmálanefnd lýsir yfir ánægju sinni með úthlutun Velferðarráðuneytisins vegna verkefna í þágu langveikra barna og barna með ADHD-greiningu.
Fundargerð lesin upp og fundi slitið kl: 18:55
Ari B. Thorarensen
Ragnheiður Guðmundsdóttir
Kristín Traustadóttir
Kristbjörg Gísladóttir
Sandra D. Gunnarsdóttir
Guðlaug Jóna Hilmarsdóttir