152. fundur framkvæmda- og veitustjórnar
152. fundur framkvæmda- og veitustjórnar, kjörtímabilið 2006-2010 haldinn miðvikudaginn 29. október 2008 að Austurvegi 67, Selfossi, kl. 17:30
Mætt:
Þorvaldur Guðmundsson, formaður, B-lista (B)
Sigurður Ingi Andrésson, nefndarmaður V-lista (V)
Guðni Torfi Áskelsson, nefndarmaður S-lista (S)
Elfa Dögg Þórðardóttir, nefndarmaður D-lista (D)
Björn Ingi Gíslason, nefndarmaður D-lista (D)
Guðmundur Elíasson, framkvæmdastjóri
Sigríður Elín Sveinsdóttir, ritari
Dagskrá:
•1. 0810127 - Upplýsingar um frárennslistilraunina
Framkvæmdastjóri kynnti stöðu mála. Fyrstu vísbendingar komu vel út en engar endanlegar niðurstöður komnar. Reiknað er með að tilrauninni verði lokið 10 nóvember 2008.
•2. 0810128 - Erindi frá skipulags og bygginganefnd
Umsögn um breytingu á skipulagi við Fossnes 3-5 og 7.
Framkvæmda- og veitustjórn gerir ekki athugasemd við tillögu að breytingu á gildandi deiliskipulagi varðandi aðkomu lóðanna Fossnes 3-5 og 7.
Erindi til kynningar:
•3. 0801166 - Framkvæmdalisti 2008
Framkvæmdastjóri kynnti stöðu framkvæmda á vegum sveitafélagsins. Helstu verkefni eru: skólabygging BES á Stokkseyri,nýtt gámasvæði við flugvöllinn,íþróttarsvæði við Engjaveg 1. áfangi og bygging dæluhúss hitaveitu við Ósabotna.
•4. 0801167 - Aldursdreifing íbúa Árborgar 2008
27. október 2008 eru 7921 skráðir íbúar í Árborg.
Á Selfossi eru skráðir 6563
Í Sandvík 192
Á Eyrarbakka og dreifbýli 598
Á Stokkseyri og dreifbýli 556
Óstaðsettir 12
Fundargerð lesin upp og fundi slitið kl: 18:20
Þorvaldur Guðmundsson
Sigurður Ingi Andrésson
Guðni Torfi Áskelsson
Elfa Dögg Þórðardóttir
Björn Ingi Gíslason
Guðmundur Elíasson
Sigríður Elín Sveinsdóttir