Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


21.12.2018

16. fundur framkvæmda- og veitustjórnar

  16. fundur framkvæmda- og veitustjórnar Árborgar, kjörtímabilið 2018-2022, haldinn 12. December 2018 að Austurvegi 67, Selfossi, kl. 08:10.  Mætt: Tómas Ellert Tómasson, formaður, M-lista Viktor Pálsson, nefndarmaður, S-lista Sveinn Ægir Birgisson, nefndarmaður, D-lista Ragnheiður Guðmundsdóttir, nefndarmaður, D-lista Jón Tryggvi Guðmundsson, framkvæmda- og veitustjóri  Álfheiður Eymarsdóttir boðaði forföll. Dagskrá: 
Almenn afgreiðslumál
1.   1801063 - Borun á ÓS-4
  Fulltrúar frá ÍSOR komu á fundinn og fóru yfir framgang og stöðu borunar við ÓS-4. Stjórnin samþykkir að halda áfram borun niður á meira dýpi og fylgt verði ráðgjöf jarðfræðinga um endanlegt dýpi holunnar. Fulltrúar D lista fagna þessari ákvörðun enda var farið í þessa framkvæmd af fyrri meirihluta. Fulltrúar meirihluta framkvæmda- og veitustjórnar fagna árangri borunnarinnar. Bókun fulltrúa D lista vekur furðu þar sem ákvörðun um borun holunnar ÓS-4 var tekin á 6.fundi stjórnar þann 6. sept. 2018, þar sem stjórnin ákvað að breyta forgangsröðun framkvæmda og fara í borun á nýrri vinnsluholu austan við núverandi vinnslusvæði skv. ráðleggingum frá ÍSOR.
     
   Fundargerð lesin upp og fundi slitið kl: 09:15  
Tómas Ellert Tómasson   Viktor Pálsson
Sveinn Ægir Birgisson   Ragnheiður Guðmundsdóttir
Jón Tryggvi Guðmundsson    
   

Þetta vefsvæði byggir á Eplica