16. fundur skipulags- og byggingarnefndar
16. fundur skipulags- og byggingarnefndar Árborgar, kjörtímabilið 2014-2018, haldinn miðvikudaginn 4. nóvember 2015 að Austurvegi 67, Selfossi, kl. 08:10. Mætt: Ásta Stefánsdóttir, formaður, D-lista, Magnús Gíslason, nefndarmaður, D-lista, Ragnar Geir Brynjólfsson, nefndarmaður, B-lista, Bárður Guðmundsson, skipulags- og byggingarfulltrúi, Hermann Dan Másson, varamaður, S-lista, Hjalti Jón Kjartansson, varamaður, D-lista, Ástgeir Rúnar Sigmarsson, aðstoðarbyggingarfulltrúi. Ástgeir Rúnar Sigmarsson ritaði fundargerð. Dagskrá:Almenn afgreiðslumál | ||
1. | 1510184 - Umsókn um stöðuleyfi fyrir gámi að Gagnheiði 71, Selfossi. Umsækjandi: Úrvals Matvæli ehf | |
Samþykkt að veita stöðuleyfi til sex mánaða. | ||
2. | 1510172 - Umsókn um stöðuleyfi fyrir iðnaðartjaldi að Hásteinsvegi 55 Stokkseyri. Umsækjandi: Erlingsson ehf | |
Samþykkt að veita stöðuleyfi til sex mánaða með fyrirvara um að húsnæðið uppfylli kröfur eldvarnaeftirlits. Bent skal á að ef verður af áformum um byggingu iðnaðarhúsnæðis þarfnast lóðin deiliskipulagningar. | ||
3. | 1510196 - Umsókn um að fá að byggja lokaða bátaskemmu undir kayakbáta við Löngudæl á Stokkseyri. | |
Samþykkt byggingarleyfi fyrir færanlegu bátaskýli enda verði lagðir fram aðaluppdrættir. | ||
4. | 1509073 - Fyrirspurn um að flytja gamla fjárhúsið og hlöðuna að Móskógum. Umsækjandi: Guðrún Bjarnþórsdóttir | |
Nefndin samþykkir flutninginn, skipulags- og byggingarfulltrúa falið að vera í sambandi við umsækjanda varðandi framkvæmdina. | ||
5. | 1510176 - Umsókn um lóðina Dranghóla 41 Selfossi. Umsækjendur: Leifur Örn Leifsson og Unnur Edda Jónsdóttir | |
Dregið var um lóðina. Samþykkt var að úthluta lóðinni til Jóns Reynis Jónssonar og Ásgerðar Tinnu Jónsdóttur. Ásdís Styrmisdóttir kom inn á fundinn og annaðist útdrátt. | ||
6. | 1510175 - Umsókn um lóðina Dranghóla 41 Selfossi. Umsækjendur: Jón Reynir Jónsson og Ásgerður Tinna Jónsdóttir | |
Dregið var um lóðina. Samþykkt var að úthluta lóðinni til Jóns Reynis Jónssonar og Ásgerðar Tinnu Jónsdóttur. Ásdís Styrmisdóttir kom inn á fundinn og annaðist útdrátt. | ||
7. | 1510185 - Fyrirspurn um fjölgun íbúða að Þykkvaflöt 11, Eyrarbakka. Fyrirspyrjandi: Óskar Eyþórsson | |
Umbeðnar breytingar eru ekki í samræmi við samþykkt deiliskipulag og getur nefndin því ekki fallist á þær að óbreyttu. Skipulags- og byggingarfulltrúa falið að ræða við umsækjanda. | ||
8. | 1510194 - Umsókn um breytingar á lóðum í Hagalandi. Umsækjandi: Jarlhettur ehf | |
Nefndin óskar eftir að fá breytingarnar í formi deiliskipulags, nefndin leggur til við bæjarstjórn að tillagan verði grenndarkynnt. Umsækjanda er bent á að allur kostnaður við breytingar fellur á lóðareigendur. | ||
9. | 1510028 - Breyting á deiliskipulagi Víkurheiðar, Selfossi | |
Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir að hafin verði vinna við breytingar á deiliskipulagi svæðisins. | ||
10. | 1507155 - Tillaga að deiliskipulagi Kotleysu Tanga, Stokkseyri | |
Nefndin leggur til við bæjarstjórn að tillagan verði auglýst. | ||
11. | 1510011F - Afgreiðslunefnd byggingarfulltrúa - 12 | |
11.1. | 1510122 - Umsókn um byggingarleyfi fyrir raðhúsi að Vörðulandi 2-8, Selfossi. Umsækjandi: Jarlhettur ehf. | |
Samþykkt. | ||
11.2. | 1510173 - Umsókn um byggingarleyfi fyrir sökkli og plötu undir iðnaðarhús að Hásteinsvegi 55, Stokkseyri. Umsækjandi: Erlingsson ehf. | |
Samþykkt. | ||
11.3. | 1510177 - Umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum á innra og ytra skipulagi að Fagurgerði 5, Selfossi. Umsækjandi: Ólafur Jónsson. | |
Samþykkt. | ||
11.4. | 1510211 - Umsókn um byggingarleyfi fyrir breyttri klæðningu að Austurvegi 44, Selfossi. Umsækjandi: VGS verkfræðistofa. | |
Samþykkt. | ||
11.5. | 1510187 - Umsókn um byggingarleyfi fyrir innra skipulagi bílskúrs að Vallholti 11, Selfossi. Umsækjendur: Ásdís Óskarsdóttir og Jón Guðni Bergsson. | |
Samþykkt. | ||
11.6. | 1510174 - Umsókn um byggingarleyfi vegna uppsetningar ruslatunnuskýlis að Eyrarvegi 2 Selfossi. Umsækjandi: Sjöstjarnan ehf. | |
Frestað. Skipulags- og byggingarfulltrúa falið að ræða við umsækjanda. | ||
Ásta Stefánsdóttir | Magnús Gíslason | |
Ragnar Geir Brynjólfsson | Bárður Guðmundsson | |
Hermann Dan Másson | Hjalti Jón Kjartansson | |
Ástgeir Rúnar Sigmarsson |