Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


27.4.2011

17. fundur framkvæmda- og veitustjórnar

17. fundur framkvæmda- og veitustjórnar Árborgar, kjörtímabilið 2010-2014 haldinn miðvikudaginn 27. apríl 2011  í Norðursal, Ráðhúsi Árborgar, Austurvegi 2, Selfossi, kl. 08:10

Mætt:
Elfa Dögg Þórðardóttir, formaður, D-lista,
Ingvi Rafn Sigurðsson, nefndarmaður, D-lista,
Tómas Ellert Tómasson, nefndarmaður, D-lista,
Eggert Valur Guðmundsson, nefndarmaður, S-lista,
Jón Tryggvi Guðmundsson, tækni- og veitustjóri.

Dagskrá:

1.  0810020 - Hundasleppisvæði
 Framkvæmdastjóra falið að vinna útfærslu- og kostnaðaráætlun vegna hundasleppisvæðis í Björkurstykki.
   
2.  0806032 - Jarðskjálftar 2008 - fráveita
 Framkvæmdastjóra falið að leita álits umboðsmanns Alþingis á afskriftarreglum Viðlagatryggingar.
   
3.  0806063 - Málefni Björgunarmiðstöðvar
 Farið yfir stöðu framkvæmda. Verkið hefur gengið vel og framkvæmdir innanhúss á lokastigi.  Framkvæmdastjóra falið að gera tillögur að lóðarfrágangi og mati á kostnaði í samræmi við hugmyndir nefndarinnar.
   
4.  1012051 - Gámastöð - opnunartímar 2011
 Nefndin samþykkir breyttan opnunartíma á gámasvæðinu frá 1. maí -1. sept. Opiðverður frá kl. 13:00-18:00 mánudaga-laugardaga.
   
5.  1103052 - Fráveituframkvæmdir 2011
 Nefndin samþykkir að bjóða út framkvæmdir við sniðræsi í Árvegi.
   
6.  1104257 - Framkvæmdir í Gráhellu
 Ásta Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri, kom á fundinn og gerði grein fyrir stöðu málsins. Framkvæmda- og veitustjórn beinir því til bæjarráðs að fundin verði lausn á lokafrágangi hverfisins sem allra fyrst.
   
7.  1103227 - Skýrslur Landsnets - kerfisáætlun 2010 og afl- og orkujöfnuður 2013/2014
 Lagt fram til kynningar.
   

Fundargerð lesin upp og fundi slitið kl: 09:50


Elfa Dögg Þórðardóttir  
Ingvi Rafn Sigurðsson
Tómas Ellert Tómasson  
Eggert Valur Guðmundsson
Jón Tryggvi Guðmundsson  


Þetta vefsvæði byggir á Eplica