Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


20.3.2014

175. fundur bæjarráðs

175. fundur bæjarráðs Árborgar, kjörtímabilið 2010-2014, haldinn fimmtudaginn 20. mars 2014  í Setri Egils, Ráðhúsi Árborgar, Austurvegi 2, Selfossi, kl. 08:10. 

Mætt: Eyþór Arnalds, formaður, D-lista, Sandra Dís Hafþórsdóttir, bæjarfulltrúi, D-lista, Eggert Valur Guðmundsson, bæjarfulltrúi, S-lista, Helgi Sigurður Haraldsson, áheyrnarfulltrúi, B-lista, Þórdís Eygló Sigurðardóttir, áheyrnarfulltrúi, V-lista, Ásta Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri Sveitarfélagsins Árborgar, sem ritar fundargerð.  

Dagskrá:

Fundargerðir til staðfestingar

1.

1401092 - Fundargerð félagsmálanefndar

 

33. fundur haldinn 13. mars

 

Fundargerðin staðfest.

 

   

2.

1401065 - Fundargerð fræðslunefndar

 

42. fundur haldinn 13. mars

 

Fundargerðin staðfest.

 

   

Almenn afgreiðslumál

3.

1403152 - Beiðni um fjárveitingu til endurnýjunar á fimleikadýnum

 

Bæjarráð samþykkir viðauka við fjárfestingaráætlun að fjárhæð kr. 2.200.000 kr. til að unnt verði að ljúka verkinu.

 

   

4.

1403181 - Fyrirspurn/umsókn um lóðina Tryggvagötu 36 fyrir nemendagarða, sumargistingu og/eða leiguíbúðir, dags. 13. mars 2014

 

Bæjarráð hafnar erindinu, á lóðinni er hús sem er nýtt fyrir starfsemi á vegum sveitarfélagsins.

 

   

5.

 

1403116 - Beiðni Sýslumannsins á Selfossi um umsögn um rekstrarleyfisumsókn, dags. 10. mars 2014, endurnýjun - Stopp Grill, Austurvegi 46

 

Bæjarráð gefur jákvæða umsögn um erindið.

 

   

6.

 

1403162 - Styrkbeiðni áhugamannafélagsins Eyðibýli, dags. 10. mars 2014 - rannsókn á eyðibýlum í Árnessýslu sumar 2014

 

Bæjarráð sér sér ekki fært að verða við erindinu.

 

   

7.

1403105 - Aðgangskerfi fyrir sundlaugar og bókasöfn, minnisblað menningar- og frístundafulltrúa dags. 14. mars 2014

 

Bæjarráð samþykkir að setja upp aðgangskerfi fyrir sundlaugar og bókasöfn og felur menningar- og frístundafulltrúa að vinna að innleiðingu þess. Gert er ráð fyrir verkefninu innan fjárhagsáætlunar.

 

   

8.

1403224 - Beiðni Útilífsmiðstöðvar skáta Úlfljótsvatni um sumarstarf á Úlfljótsvatni sumarið 2014

 

Bæjarráð samþykkir erindið varðandi einn starfsmann í þrjá mánuði.

 

   

9.

1403225 - Beiðni um undantekningu á lögreglusamþykkt Árborgar - lenging á opnunartíma skemmtistaðarins Fróns

 

Bæjarráð óskar eftir umsögn lögreglu um erindið.

 

   

10.

 

1403228 - Beiðni Sýslumannsins á Selfossi um umsögn um rekstrarleyfisumsókn, dags. 17. mars 2014 - gististaður að Túngötu 9, Eyrarbakka

 

Bæjarráð vísar erindinu til umsagnar skipulags- og byggingarnefndar.

 

   

11.

1403179 - Aðalfundur Eignarhaldsfélags Suðurlands hf. 2014, fundarboð

 

Bæjarráð veitir Eyþóri Arnalds, formanni bæjarráðs, umboð til að sitja fundinn.

 

   

12.

1007011 - Safn mjólkuriðnaðarins á Selfossi

 

Farið var yfir stöðu mála.

 

   

13.

1305094 - Skipan í starfshóp vegna Grænumarkar 5

 

Bæjarráð skipar Ara B. Thorarensen til setu í hópnum, Guðlaug Jóna Hilmarsdóttir, félagsmálastjóri, starfi með hópnum. Óskað er tilnefningar frá Félagi eldri borgara og lóðarhafa að Austurvegi 51.

 

   

 

Fundargerð lesin upp og fundi slitið kl: 09:30.
 

Eyþór Arnalds

 

Sandra Dís Hafþórsdóttir

Eggert V. Guðmundsson

 

Helgi Sigurður Haraldsson

Þórdís Eygló Sigurðardóttir

 

Ásta Stefánsdóttir


Þetta vefsvæði byggir á Eplica