179. fundur bæjarráðs
179. fundur bæjarráðs Árborgar, kjörtímabilið 2010-2014, haldinn miðvikudaginn 16. apríl 2014 í Setri Egils, Ráðhúsi Árborgar, Austurvegi 2, Selfossi, kl. 08:10 .
Mætt: Eyþór Arnalds, formaður, D-lista, Sandra Dís Hafþórsdóttir, bæjarfulltrúi, D-lista, Eggert Valur Guðmundsson, bæjarfulltrúi, S-lista, Þórdís Eygló Sigurðardóttir, áheyrnarfulltrúi, V-lista, Ásta Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri Sveitarfélagsins Árborgar, sem ritaði fundargerð.
Helgi S. Haraldsson, B-lista, boðaði forföll.
Dagskrá:
Fundargerðir til staðfestingar |
||
1. |
1401093 - Fundargerð framkvæmda- og veitustjórnar |
|
74. fundur haldinn 9. apríl |
||
Fundargerðin staðfest. |
||
|
||
2. |
1401095 - Fundargerð íþrótta- og menningarnefndar |
|
17. fundur haldinn 9. apríl |
||
Fundargerðin staðfest. |
||
|
||
3. |
1401065 - Fundargerð fræðslunefndar |
|
43. fundur haldinn 10. apríl |
||
Fundargerðin staðfest. |
||
|
||
Fundargerðir til kynningar |
||
4. |
1404027 - Fundargerð stjórnar þjónustusvæðis Suðurlands í málefnum fatlaðra |
|
Vorfundur haldinn 2. apríl |
||
Lagt fram. |
||
|
|
|
Almenn afgreiðslumál |
||
5. |
1404097 - Beiðni Jóns Jónssonar um afnot af fánastöng bæjarins á Stokkseyri |
|
Bæjarráð samþykkir erindið. |
||
|
||
6. |
1404131 - Árlegar upplýsingar frá Veiðifélagi Árnesinga 2014 og fundarboð á aðalfund |
|
Bæjarráð felur framkvæmdastjóra sveitarfélagsins að sækja aðalfundinn. |
||
|
||
7. |
1403225 - Beiðni um undantekningu frá ákvæðum lögreglusamþykktar Árborgar um opnunartíma skemmtistaða- lenging á opnunartíma skemmtistaðarins Fróns |
|
Með vísan til álits lögreglunnar á Selfossi, dags. 2. apríl 2014, hafnar bæjarráð því að heimilað verði að hafa skemmtistaði opna til kl. 04:30 aðfaranætur laugardaga og sunnudaga í stað kl. 03. Bæjarráð hefur haft þá almennu reglu að taka mið af ábendingum lögreglu varðandi opnunartíma skemmtistaða og undanþágur frá almennum reglum lögreglusamþykktar. |
||
|
||
8. |
1404160 - Beiðni Þuríðar Gunnarsdóttur um umráðaskipti á löndunum Teigi, Sólvöllum og Gunnarshústúni |
|
Bæjarráð samþykkir erindið. |
||
|
||
9. |
1404171 - Beiðni allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis, dags. 11. apríl 2014, um umsögn - frumvarp til laga um örnefni |
|
Lagt fram. |
||
|
||
10. |
1403025 - Staðfesting frá HSK vegna umsóknar um unglingalandsmót UMFÍ 2017 |
|
Lagt fram. |
||
|
||
Erindi til kynningar |
||
11. |
1404166 - Ársskýrsla Ungmennafélags Selfoss 2013 |
|
Skýrsla liggur hjá framkvæmdastjóra |
||
Lagt fram. |
||
|
Fundargerð lesin upp og fundi slitið kl: 9.10.
Eyþór Arnalds
Sandra Dís Hafþórsdóttir
Eggert V. Guðmundsson
Þórdís Eygló Sigurðardóttir
Ásta Stefánsdóttir