14.1.2016
18. fundur skipulags- og byggingarnefndar
18. fundur skipulags- og byggingarnefndar Árborgar, kjörtímabilið 2014-2018, haldinn miðvikudaginn 6. janúar 2016 að Austurvegi 67, Selfossi, kl. 08:10.
Mætt: Ásta Stefánsdóttir, formaður, D-lista, Magnús Gíslason, nefndarmaður, D-lista, Gísli Á. Jónsson, nefndarmaður, D-lista, Guðlaug Einarsdóttir, nefndarmaður, S-lista, Ragnar Geir Brynjólfsson, nefndarmaður, B-lista, Bárður Guðmundsson, skipulags- og byggingarfulltrúi, Ástgeir Rúnar Sigmarsson, aðstoðarbyggingarfulltrúi.
Dagskrá:
Samþykktir byggingarfulltrúa |
1. |
1512012 - Óskað er umsagnar um rekstrarleyfi fyrir veitingastað í flokki II að Eyravegi 2, Selfossi. Umsagnaraðili: Sýslumaðurinn á Suðurlandi |
|
Samþykkt að veita jákvæða umsögn. |
|
|
|
Almenn afgreiðslumál |
2. |
1512183 - Fyrirspurn um viðbyggingu að Kirkjuvegi 35, Selfossi. Umsækjendur: Íris Hödd Pétursdóttir og Bjarki Þór Vilhjálmsson |
|
Samþykkt að grenndarkynna erindið. |
|
|
|
3. |
1512182 - Athugasemdir vegna vegriðs/steinkants - Gagnheiði 19, Selfossi. Erindi frá Þórði G Árnasyni |
|
Uppsetning vegriðs/steinkants er ekki byggingarleyfisskyld. Ágreiningur aðila um nýtingu lóðarinnar fellur ekki undir valdsvið skipulags- og byggingarnefndar og tekur nefndin því ekki afstöðu í málinu. |
|
|
|
4.
|
1512181 - Umsókn um lóðina Dranghóla 41, Selfossi. Umsækjendur: Sverrir Jón Einarsson og Álfheiður Tryggvadóttir |
|
Dregið var um lóðina. Samþykkt var að úthluta lóðinni til Leifs Arnar Leifssonar og Unnar Eddu Jónsdóttur. Ásdís Styrmisdóttir kom inn á fundinn og annaðist útdrátt. |
|
|
|
5. |
1512180 - Umsókn um lóðina Dranghóla 41, Selfossi. Umsækjendur: Leifur Örn Leifsson og Unnur Edda Jónsdóttir |
|
Dregið var um lóðina. Samþykkt var að úthluta lóðinni til Leifs Arnar Leifssonar og Unnar Eddu Jónsdóttur. Ásdís Styrmisdóttir kom inn á fundinn og annaðist útdrátt. |
|
|
|
6. |
1512179 - Framkvæmdaleyfisumsókn fyrir veg austast í landi Kaldaðarness. Umsækjandi: Ingibjörg Eyþórsdóttir |
|
Nefndin leggur til við bæjarstjórn að umsóknin verði samþykkt. |
|
|
|
7. |
1512097 – Umsókn um breytta notkun húsnæðis að Austurvegi 54, Selfossi. Umsækjandi: Smíðandi ehf |
|
Nefndin tekur jákvætt í erindið og óskar eftir fullnægjandi gögnum. |
|
|
|
8. |
1512053 - Umsókn um stöðuleyfi fyrir gestahúsi að Eyrarbraut 29, Stokkseyri. Umsækjandi: Gísli ehf |
|
Stöðuleyfi samþykkt til sex mánaða. |
|
|
|
9. |
1510033 - Fyrirspurn um að setja svalahurð að Tryggvagötu 5, Selfossi, erindið hefur verið grenndarkynnt og engar athugasemdir borist. Umsækjandi: Þórhallur Birgisson |
|
Óskað eftir reyndarteikningum af útliti og innra skipulagi. |
|
|
|
10. |
1601005 - Fyrirspurn um að breyta bílskúr í íbúðarhúsnæði að Engjavegi 75, Selfossi. Umsækjandi: Björgvin S Guðmundsson |
|
Lagt var til að erindinu yrði hafnað. Var það samþykkt með atkvæðum fulltrúa D- og S- lista, fulltrúi B- lista óskaði eftir að málið yrði skoðað betur. Skipulags- og byggingarfulltrúa falið að kanna hvernig önnur sveitarfélög taka á slíkum beiðnum. |
|
|
|
11. |
1601021 - Óskað er umsagnar um rekstrarleyfi fyrir gististað í flokki I að Engjavegi 75, Selfossi. Umsagnaraðili: Sýslumaðurinn á Suðurlandi |
|
Nefndin gefur jákvæða umsögn um leyfi fyrir heimagistingu í íbúðarhúsinu að Engjavegi 75. |
|
|
|
12. |
1507155 - Tillaga að deiliskipulagi við Kotleysu Tanga Stokkseyri, tillagan hefur verið auglýst og engar athugasemdir borist. |
|
Lagt er til við bæjarstjórn að tillagan verði samþykkt. |
|
|
|
13. |
1302259 - Tillaga að breyttu skipulagi í Dísarstaðalandi, tillagan hefur verið auglýst og athugasemdir borist. |
|
Formanni og skipulags- og byggingarfulltrúa falið að ræða við framkvæmda- og veitusvið og landeigendur. |
|
|
|
14. |
1504327 - Tillaga að deiliskipulagsbreytingu að Hulduhól, Eyrarbakka. |
|
Lagt er til við bæjarstjórn að tillagan verði auglýst. |
|
|
|
Fundargerð lesin upp og fundi slitið kl: 09:40
Ásta Stefánsdóttir |
|
Magnús Gíslason |
Gísli Á. Jónsson |
|
Guðlaug Einarsdóttir |
Ragnar Geir Brynjólfsson |
|
Bárður Guðmundsson |
Ástgeir Rúnar Sigmarsson |
|
|