21.9.2018
2. fundur fræðslunefndar
2. fundur fræðslunefndar Árborgar, kjörtímabilið 2018-2022, haldinn miðvikudaginn 12. september 2018 í Norðursal, Ráðhúsi Árborgar, Austurvegi 2, Selfossi, kl. 16:30.
Mætt:
Arna Ír Gunnarsdóttir, formaður, S-lista
Gunnar Eysteinn Sigurbjörnsson, nefndarmaður, Á-lista
Brynhildur Jónsdóttir, nefndarmaður, D-lista
Þórhildur Dröfn Ingvadóttir, nefndarmaður, D-lista
Kristín Eiríksdóttir, fulltrúi leikskólastjóra
Guðbjartur Ólason, fulltrúi skólastjóra
Sandra Guðmundsdóttir, fulltrúi foreldra
Birna Aðalheiður Árdal Birgisdóttir, fulltrúi foreldra leikskóla
Brynja Hjörleifsdóttir, fulltrúi starfsmanna leikskóla
Þorsteinn Hjartarson, fræðslustjóri
Dagskrá:
Almenn afgreiðslumál
1. 1808024 - Erindisbréf fræðslunefndar
Fræðslunefnd samþykkir erindisbréfið og vísar því til frekari skoðunar og afgreiðslu hjá bæjarstjórn.
2. 1809059 - Starfsskýrsla Álfheima 2018-2019
Fræðslunefnd staðfestir starfsskýrsluna.
3. 1808102 - Starfsáætlun Jötunheima 2017-2018 og 2018-2019
Fræðslunefnd staðfestir starfsáætlunina.
4. 1809049 - Starfsáætlun Brimvers/Æskukots 2018-2019
Fræðslunefnd staðfestir starfsáætlunina.
5. 1809050 - Ósk um fjölgun starfsmannafunda leikskóla 2019-2020
Fræðslunefnd tekur jákvætt í erindið og vísar því áfram til frekari umfjöllunar í fjárhagsáætlunargerðinni.
6. 1808018 - Reglur um námsleyfi í leikskólum Árborgar
Samþykkt að eftirtaldir fulltrúar verði í úthlutunarnefndinni:
Arna Ír Gunnarsdóttir, formaður fræðslunefndar
Jóhanna Þórhallsdóttir, fulltrúi leikskólastjóra
Júlíana Hilmisdóttir, fulltrúi skrifstofu fræðslusviðs
Nefndinni falið að ljúka nánari útfærslu á reglunum fyrir fund fræðslunefndar í október nk.
Erindi til kynningar
7. 1802205 - Foreldraráð Brimvers/Æskukots
Til kynningar.
- Fundargerð frá 21. ágúst 2018.
- Fundargerð frá 6. júní 2018.
8. 1708133 - Undirbúningur að byggingu skóla í Björkurstykki
Til kynningar.
- Fundargerð frá 20. ágúst 2018.
- Fundargerð frá 29. ágúst 2018.
9. 1802235 - Ytra mat - Leikskólinn Jötunheimar
Bréf frá mennta- og menningarmálaráðuneyti, dags. 30. ágúst 2018, til kynningar.
10. 1809094 - Fjárhagsáætlun fræðslusviðs 2019
Fræðslustjóri kynnti vinnu við gerð fjárhagsáætlunar 2019.
11. 1802006 - Samráðsfundir skólastjóra og fræðslustjóra
Fundargerð frá 28. ágúst 2018 til kynningar.
12. 1802201 - Samstarfsfundur leikskólastjóra og fræðslustjóra
Fundargerð frá 4. september 2018 til kynningar.
13. 1803120 - Ný lög um persónuvernd og innleiðing þeirra frá 2018
Til kynningar. Bréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dags. 24. ágúst 2018, um innleiðingu nýrra persónuverndarlaga v/leikskóla.
14. 1808013 - Erasmus+ KA 101 (Tyrkland)
Til kynningar.
15. 1809009 - Námsleyfi fyrir grunnskólakennara og skólastjóra fyrir skólaárið 2019-2020
Til kynningar.
16. 1806045 - Fræðslu- og umræðufundir um menntun fyrir alla og menntastefnu 2030
Frétt frá fyrsta fundinum, sem haldinn var í Árborg, til kynningar.
Fundargerð lesin upp og fundi slitið kl: 17:50
Arna Ír Gunnarsdóttir Gunnar Eysteinn Sigurbjörnsson
Brynhildur Jónsdóttir Þórhildur Dröfn Ingvadóttir
Kristín Eiríksdóttir Guðbjartur Ólason
Sandra Guðmundsdóttir Birna Aðalheiður Árdal Birgisdóttir
Brynja Hjörleifsdóttir Þorsteinn Hjartarson