Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


16.7.2010

2. fundur framkvæmda- og veitustjórnar Árborgar

2. fundur framkvæmda- og veitustjórnar Árborgar, kjörtímabilið 2010-2014 haldinn föstudaginn 16. júlí 2010 að Austurvegi 67, Selfossi, kl. 08:00

Mætt:
Elfa Dögg Þórðardóttir, formaður, D-lista,
Guðjón Guðmundsson, varamaður D-lista,
Tómas Ellert Tómasson, nefndarmaður D-lista,
Kjartan Ólason, varamaður S-lista,
Bjarni Harðarson, nefndarmaður V-lista,
Guðmundur Elíasson. framkvæmdastjóri,

Dagskrá:

1. 1007047 - Framkvæmdaáætlanir í byggðarkjörnum Árborgar

Framkvæmda og veitustjórn samþykkir að vinna að 6 ára áætlun um framkvæmdir í sveitarfélaginu sem verði fylgt í hvívetna. Áætlunin miðist við að útrýma ómalbikuðum götum í sveitarfélaginu, endurnýja gangstéttar og götur, og fegra umhverfi almennt með sérstöðu hvers svæðis að leiðarljósi. Framkvæmda- og veitustjórn felur framkvæmdastjóra að gera drög að áætlun og leggja fyrir næsta fund.

2. 1007048 - Deiliskipulag við Húsið á Eyrarbakka

Framkvæmda- og veitustjórn felur formanni og framkvæmdastjóra að ræða við formann Skipulags- og bygginganefndar og byggingafulltrúa um nýtt deiliskipulag.

3. 1007050 - Endurnýjun á gangstéttum á Eyrarbakka

Framkvæmda- og veitustjórn óskar eftir fjárheimild bæjarráðs til að endurnýja gangstéttir frá Álfstétt að Helgafelli. Áætlaður kostnaður er rúmar 2 milljónir.

4. 1007052 - Endurbætur í gatnagerð miðbæjar Selfoss

Framkvæmda og veitustjórn felur framkvæmdastjóra að gera tillögu um breytingar á miðeyjum á Austurvegi þar sem steypa verður fjarlægð og gróður settur í staðinn.

5. 1007053 - Endurbætur á skólalóðinni á Eyrarbakka

Stjórn Framkvæmda- og veitusviðs samþykkir að fara í vettvangsferð á næsta stjórnarfundi með tilliti til úrbóta á húsnæði og lóð.

6. 1005133 - Umsögn um vatnstengingu í kaffihús við Eyrarbakkabryggju

beiðni um umsögn frá 3. fundi bæjarráðs

Stjórn Framkvæmda- og veitusviðs telur ekki tæknilega annmarka á vatnstengingu að kaffihúsinu.

7. 1007049 - Kostnaðaráætlun - ómalbikaðar götur á Eyrarbakka og Stokkseyri

umræða um áætlaðan kostnað við malbikun gatna á Ströndinni

Framkvæmdastjóri kynnti kostnaðaráætlun.

8. 1007051 - Malbikun við Lista- og menningarverstöðina á Stokkseyri

kostnaðaráætlun kynnt

Framkvæmdastjóri kynnti kostnaðaráætlun.

9. 1006066 - Mögulegir virkjanakostir í Sveitarfélaginu Árborg

Eiríkur Bragason verkfræðingur kynnir

Stjórn Framkvæmda- og veitusviðs samþykkir að vinna áfram að forathugun á hagkvæmni og umhverfisáhrifum rennslisvirkjunar. Kostnaður rúmast innan fjárhagsáætlunar fyrir árið 2010.

10. 1003034 - Velferðarvaktin - velferð barna á krepputímum

kynning á átaksverkefni fyrir 17-18 ára ungmenni

Alls sóttu 19 ungmenni um vinnu og hafa öll fengið ráðningu. Þessi sérsveit umhverfisdeildar mun sjá um afmörkuð verkefni á umhverfissviði.

11. 1002012 - Íbúaþróun 2010

Árborg: Fjöldi íbúa: 7804
Selfoss: 6498
Sandvík: 212
Eyrarbakki og dreifb.: 572
Stokkseyri og dreifb.: 515
Óstaðsettir: 7

12. 0904209 - Framkvæmdir á íþróttasvæðinu við Engjaveg

Framkvæmdir ganga vel og verða stúka, grasvellir og frjálsíþróttaaðstaða tilbúin fyrir haustið.

Fundargerð lesin upp og fundi slitið kl: 10:40

Elfa Dögg Þórðardóttir
Guðjón Guðmundsson
Tómas Ellert Tómasson
Kjartan Ólason
Bjarni Harðarson
Guðmundur Elíasson


Þetta vefsvæði byggir á Eplica