18.12.2014
20. fundur bæjarráðs
20. fundur bæjarráðs Árborgar, kjörtímabilið 2014-2018, haldinn fimmtudaginn 18. desember 2014 í Setri Egils, Ráðhúsi Árborgar, Austurvegi 2, Selfossi, kl. 08:10.
Mætt:
Gunnar Egilsson, formaður, D-lista,
Sandra Dís Hafþórsdóttir, bæjarfulltrúi, D-lista,
Eggert Valur Guðmundsson, bæjarfulltrúi, S-lista,
Arna Ír Gunnarsdóttir, varamaður, S-lista,
Helgi Sigurður Haraldsson, áheyrnarfulltrúi, B-lista,
Viðar Helgason, áheyrnarfulltrúi, Æ-lista,
Ásta Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri Sveitarfélagsins Árborgar, sem ritaði fundargerð.
Formaður leitaði afbrigða að taka á dagskrá umsókn um tækifærisleyfi v/áramótafagnaðar á Stokkseyri og á 800 Bar. Var það samþykkt samhljóða.
Dagskrá:
Fundargerðir til staðfestingar
1. 1406099 - Fundargerð fræðslunefndar
5. fundur haldinn 11. desember
-liður 1, 1411050, reglur um samskipti skóla og trúfélaga í Árborg. Bæjarráð staðfestir reglurnar.
Fundargerðin staðfest.
Fundargerðir til kynningar
2. 1402007 - Fundargerð stjórnar SASS
488. fundur haldinn 12. desember
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
Eggert Valur Guðmundsson, S-lista, vék af fundi og Arna Ír Gunnarsdóttir, S-lista, kom inn á fundinn í staðinn.
Almenn afgreiðslumál
3. 1403025 - Auglýsing Ungmennafélags Íslands eftir umsóknum frá sambandsaðilum UMFÍ vegna unglingalandsmóts UMFÍ 2017, dags. 10. desember 2014
Bæjarráð samþykkir að óska eftir því við HSK að sækja um unglingalandsmót á Selfossi árið 2017 með stuðningi Sveitarfélagsins Árborgar.
4. 1403276 - Rekstraryfirlit og fjárhagstölur fyrstu 10 mánaða ársins 2014
Ásbjörn Sigurðsson kom inn á fundinn og fór yfir niðurstöður rekstrar.
5. 1411206 - Stefnumörkun í atvinnu- og ferðamálum
Skipan í starfshóp
Bæjarráð skipar eftirtalda til setu í starfshópnum: Ástu Stefánsdóttur, Eggert Val Guðmundsson og Viðar Helgason. Bragi Bjarnason starfi með hópnum.
6. 1412085 - Styrkbeiðni Sambands sunnlenskra kvenna, dags. 30. nóvember 2014 - landsþing Kvenfélagasambands Íslands á Selfossi 2015
Bæjarráð felur framkvæmdastjóra að svara erindinu.
7. 1411172 - Kauptilboði Ástjörn 3
Bæjarráð felur framkvæmdastjóra að ganga frá gagntilboði.
8. 1403380 - Fundartími bæjarráðs 2014
Fundir bæjarráðs milli jóla og nýárs
Næsti fundur bæjarráðs verður haldinn fimmtudaginn 8. janúar.
9. 1412113 - Beiðni Sýslumannsins á Selfossi um umsögn um umsókn um tækifærisleyfi - áramótafagnaður Umf. Stokkseyrar
Bæjarráð gefur jákvæða umsögn um opnunartíma til kl. 04.
10. 1412147 - Tækifærisleyfi - jóla- og áramótafagnaður í 800Bar
Bæjarráð gefur jákvæða umsögn um opnunartíma til kl. 04.
Fundargerð lesin upp og fundi slitið kl: 10:00.
Gunnar Egilsson
Sandra Dís Hafþórsdóttir
Eggert V. Guðmundsson
Arna Ír Gunnarsdóttir
Helgi Sigurður Haraldsson
Viðar Helgason
Ásta Stefánsdóttir