21. fundur bæjarráðs
21. fundur bæjarráðs Árborgar, kjörtímabilið 2006-2010 haldinn 30.11.2006 í Ráðhúsi Árborgar, Austurvegi 2, Selfossi, kl. 08:10
Mætt:
Þórunn J Hauksdóttir, formaður
Margrét Katrín Erlingsdóttir, varaformaður
Ragnheiður Hergeirsdóttir, varamaður Gylfa Þorkelssonar
Jón Hjartarson, áheyrnarfulltrúi
Stefanía Katrín Karlsdóttir, bæjarstjóri
Ásta Stefánsdóttir, bæjarritari
1. Fundargerðir til staðfestingar:
|
0606107 |
frá 22.11.06 |
|
|
b. |
0607048 |
frá 22.11.06 |
|
c. |
0609054 |
frá 20.11.06 |
|
d. |
0606112 |
frá 23.11.06 |
1.b – liður 3a) Reglunum var dreift á fundinum. Bæjarráð staðfestir reglurnar.
1.b-liður 3b) Ragnheiður Hergeirsdóttir, S-lista, lagði fram svo hljóðandi bókun:
Undirrituð gagnrýnir þá ákvörðun meirihlutaflokkanna að bjóða minnihlutanum ekki fulltrúa í stjórn afreks- og styrktarsjóðs Árborgar nú þegar meirihlutinn ákveður, í nafni jafnræðis, að ÍTÁ skipi alla þrjá fulltrúana. Um er að ræða verkefni sem ekki ætti að vera pólitískur ágreiningur um og minnt er á að á síðasta kjörtímabili átti minnihlutinn ætíð fulltrúa í þessari stjórn. Þetta er enn eitt dæmið um ólýðræðisleg vinnubrögð meirihlutans á þessu kjörtímabili.
Jón Hjartarson, V-lista, óskaði eftir að bókað yrði að hann tæki undir bókun Ragnheiðar Hergeirsdóttur.
1. b-liður 5, Ragnheiður Hergeirsdóttir, S-lista, lagði fram svo hljóðandi bókun:
Undirrituð gagnrýnir enn og aftur ólýðræðislegar vinnuaðferðir meirihlutaflokkanna, nú vegna skipunar í undirbúningsnefnd vegna uppskeruhátíðar ÍTÁ þar sem minnihlutanum er ekki boðið sæti í nefndinni.
1.b – liður 6) Bæjarráð samþykkir tillögu nefndarinnar. Ragnheiður Hergeirsdóttir, S-lista, situr hjá.
1.b-liður 7
Fyrirspurn til bæjarráðs frá Ragnheiði Hergeirsdóttur S-lista
Það vekur athygli að á fundi ÍTÁ er einungis kynnt niðurstaða meirihlutans í starfshópi um endurbætur áSundhöll Selfoss. Hvers vegna var minnihlutaálit starfshópsins ekki kynnt á þessum fundi ?
1.b-liður 8a)
Fyrirspurn til bæjarráðs frá Ragnheiði Hergeirsdóttur S-lista
Meirihlutinn var með áætlanir um að opna ungmennahús s.l. haust. Nú virðist hafa orðið töf á málinu. Hver er staða málsins og hvenær ætlar meirihlutinn að opna slíkt hús ?
1.c – liður 2) Bæjarráð samþykkir tillögu nefndarinnar og felur bæjarritara að koma málinu í farveg.
1d) -liður 8, bæjarráð samþykkir tillögu nefndarinnar varðandi tillögu að breyttu aðalskipulagi við Stóru-Sandvík 1b að uppfylltum öllum skilyrðum Skipulagsstofnunar sem fram koma í bréfi stofnunarinnar 30. ágúst 2006.
-liður 9, bæjarráð samþykkir tillögu nefndarinnar varðandi tillögu að breyttu aðalskipulagi við Byggðarhorn að uppfylltum öllum skilyrðum Skipulagsstofnunar sem fram koma í bréfi stofnunarinnar 30. ágúst 2006.
-liður 12, bæjarráð samþykkir að deiliskipulagstillagan verði auglýst.
Fundargerðirnar staðfestar.
2. Fundargerðir til kynningar:
|
0604007 |
frá 22.11.06 |
|
|
b. |
0601091 |
frá 15.11.06 |
3. 0608004
Drög að fjárhagsáætlun 2007 –
Lögð fram og vísað til afgreiðslu í bæjarstjórn
4. 0611057
Tillaga Sigurðar Sigurðarsonar, dýralæknis, - skipan samráðsnefndar um baráttu gegn riðuveiki
Bæjarráð tilnefnir Ara B. Thorarensen í samráðsnefnd um riðuveiki.
5. 0611106
Erindi frá Fjölbrautaskóla Suðurlands - viðbygging við verknámshúsið Hamar.
Bæjarráð samþykkir erindi Fjölbrautaskóla Suðurlands um þátttöku í áframhaldandi uppbyggingu skólans.
6. 0611150
Tillaga Útvegsmannafélags Þorlákshafnar til sjávarútvegsráðherra - rýmkun veiðisvæðis fyrir dragnót fyrir Suðurlandi, beiðni um stuðning Sveitarfélagsins Árborgar.
Bæjarráð vísar erindinu til umsagnar umhverfisnefndar.
7. 0611074
Fyrirspurn Davíðs Jónssonar vegna breytingar á hluta lands sem fylgir Birkihlíð, Stokkseyri.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við fyrirhugaðar breytingar og bendir bréfritara á að leita til byggingafulltrúa varðandi gerð stofnskjals á reit númer 2, á meðfylgjandi korti, og til landbúnaðarfulltrúa varðandi reit nr. 3.
8. Erindi til kynningar:
Engin erindi til kynningar.
Fundargerð lesin upp og fundi slitið kl: 9:00.
Þórunn J Hauksdóttir
Margrét K. Erlingsdóttir
Ragnheiður Hergeirsdóttir
Stefanía K. Karlsdóttir
Jón Hjartarson
Ásta Stefánsdóttir