Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


15.1.2008

21. fundur leikskólanefndar

21. fundur leikskólanefndar, kjörtímabilið 2006-2010 haldinn mánudaginn 14. janúar 2008  í Norðursal, Ráðhúsi Árborgar, Austurvegi 2, Selfossi, kl. 17:0

Mætt: 
Sædís Ósk Harðardóttir, formaður, V-lista (V)
Róbert Sverrisson, varaformaður, B-lista (B)
Arna Ír Gunnarsdóttir, varamaður S-lista
Ari B. Thorarensen, nefndarmaður D-lista (D)
Ásdís Sigurðardóttir, nefndarmaður D-lista (D)
Sigurborg Ólafsdóttir, fulltrúi foreldra
Auður Hjálmarsdóttir, fulltrúi starfsmanna
Sigurður Bjarnason, verkefnisstjóri fræðslumála
Ragnheiður Thorlacius, framkvæmdastjóri
Kristín Eiríksdóttir, leikskólastjóri

Dagskrá:

1. 0712058 - Umsögn um frumvörp - grunnskólar (heildarlög) og leikskólar (heildarlög)

Lagt var fram frumvarp til laga um leikskóla. Ákveðið að nefndarmenn fari yfir frumvarpið og skili inn athugasemdum til verkefnisstjóra fræðslumála fyrir næsta fund nefndarinnar.

2. 0712059 - Umsögn um frumvörp - heildarlög um framhaldsskóla 286. mál og lög um menntun og ráðningu kennara og ... 288. mál

Lagt var frumvarp til laga um menntun og ráðningu kennara og skólastjónenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla. Ákveðið að nefndarmenn fari yfir frumvarpið og skili inn athugasemdum til verkefnisstjóra fræðslumála fyrir næsta fund nefndarinnar.

Erindi til kynningar:

3. 0703153 - Skólaþróunarsjóður Árborgar

Kynnt var úthlutun úr skólaþróunarsjóði Árborgar.

4. 0801076 - Opnun deildar í leikskólanum Hulduheimum

Kristín Eiríksdóttir leikskólastjóri fór yfir opnun deildar í leikskólanum Hulduheimum. 24 plássum var úthlutað á nýrri deild sem tekin var í notkun um áramót. Barnafjöldinn kallar á fimm starfsmenn. Búið er á þessari stundu að ráða í rúmar fjórar stöður.

Fundargerð lesin upp og fundi slitið kl: 18:10

Sædís Ósk Harðardóttir                                   
Róbert Sverrisson
Arna Ír Gunnarsdóttir                                       
Ari B. Thorarensen
Ásdís Sigurðardóttir                                         
Sigurborg Ólafsdóttir
Auður Hjálmarsdóttir                                       
Sigurður Bjarnason
Ragnheiður Thorlacius                          
Kristín Eiríksdóttir


Þetta vefsvæði byggir á Eplica