Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


19.5.2016

22. fundur skipulags- og byggingarnefndar

22. fundur skipulags- og byggingarnefndar Árborgar, kjörtímabilið 2014-2018, haldinn miðvikudaginn 4. maí 2016 að Austurvegi 67, Selfossi, kl. 08:10.  Mætt: Ásta Stefánsdóttir, formaður, D-lista, Magnús Gíslason, nefndarmaður, D-lista, Gísli Á. Jónsson, nefndarmaður, D-lista, Guðlaug Einarsdóttir, nefndarmaður, S-lista, Ragnar Geir Brynjólfsson, nefndarmaður, B-lista, Bárður Guðmundsson, skipulags- og byggingarfulltrúi, Ástgeir Rúnar Sigmarsson, aðstoðarbyggingarfulltrúi. Ástgeir Rúnar Sigmarsson ritaði fundargerð. Formaður leitaði afbrigða að taka á dagskrá tillögu að deiliskipulagi í Byggðarhorni land 9. Var það samþykkt samhljóða. Dagskrá: 
Almenn afgreiðslumál
1. 1604267 - Fyrirspurn um stækkun á bílskúr að Smáratúni 10, Selfossi. Fyrirspyrjandi: EFFORT teiknistofa
Óskað er eftir ítarlegri gögnum.
2. 1604312 - Umsókn um lóðina Ólafsvelli 13-19, Stokkseyri. Umsækjandi: Erlingsson ehf.
Samþykkt að úthluta lóðinni.
3. 1604262 - Athugasemd við göngustíg sem liggur hjá Fossvegi 6,Selfossi.
Skipulags- og byggingarnefnd tekur jákvætt í erindið en vísar því til frekari afgreiðslu bæjarráðs.
4. 1604221 - Beiðni um breytingu á byggingarreit að Birkivöllum 7 og 9, Selfossi.Umsækjandi: Bjarki R Kristjánsson og Erna Karen Óskarsdóttir
Skipulags- og byggingarnefnd hafnar því að farið verði út fyrir byggingarlínu við götu.
5. 1604241 - Óskað eftir að setja upp ljósastaura við Ríkissalinn í Miðtúni 1, Selfossi. Umsækjandi: Gísli Þór Gunnarsson
Samþykkt.
6. 1604220 - Umsókn um stöðuleyfi fyrir sumarhús að Eyravegi 33, Selfossi.Umsækjandi: Súperbygg ehf
Samþykkt til sex mánaða.
7. 1604258 - Umsókn um stofnun lóðar út úr landi Stekka, Stekkar 3
Samþykkt.
8. 1604330 - Umsókn um stofnun lóðar úr landi Stekka. Stekkar lóð 3
Frestað, óskað eftir umsögn vegagerðar vegna aðkomu.
9. 1604260 - Umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir ljósleiðara á Stokkseyri. Umsækjandi: TRS
Lagt til við bæjarstjórn að framkvæmdaleyfi verði veitt með því skilyrði að lagður verði fram skriflegur samningur við framkvæmda- og veitusvið um yfirborðsfrágang og verktíma.
10. 1504327 - Tillaga að deiliskipulagsbreytingu við Hulduhól, Eyrarbakka. Erindið hefur verið auglýst og engar athugasemdir borist.
Lagt er til við bæjarstjórn að tillagan verði samþykkt.
11. 1405411 - Tillaga að deiliskipulagi að Austurvegi 51-59. Tillagan hefur verið auglýst og engar athugasemdir borist.
Lagt er til við bæjarstjórn að tillagan verði samþykkt.
12. 1312089 - Tillaga að deiliskipulagi hreinsistöðvar við Geitanes
Nefndin leggur til við bæjarráð að skipulagslýsingin verði endurskoðuð, auglýst og kynnt. Sigurður Sigurjónsson hrl. kom inn á fundinn.
13. 1601304 - Fyrirspurn um aukið byggingarmagn að Byggðarhorni land 9. Umsækjandi: Effort teiknistofa fh. eigenda
Lagt er til bæjarstjórn að tillagan verði auglýst, einnig er óskað eftir umsögn Vegagerðar vegna vegtengingar við Votmúlaveg.
14. 1604011F - Afgreiðslunefnd byggingarfulltrúa - 18
14.1. 1605001 - Umsókn um byggingarleyfi að Eyrarlæk 2a-6, Selfossi. Umsækjandi: Jarlhettur ehf.
Samþykkt með fyrirvara um að brugðist verði við athugasemdum.
14.2. 1605002 - Umsókn um byggingarleyfi að Bleikjulæk 2-8, Selfossi. Umsækjandi: Jarlhettur ehf.
Samþykkt með fyrirvara um að brugðist verði við athugasemdum.
14.3. 1605004 - Umsókn um byggingarleyfi að Bleikjulæk 37-43, Selfossi. Umsækjandi: Jarlhettur ehf.
Samþykkt með fyrirvara um að brugðist verði við athugasemdum.
14.4. 1605003 - Umsókn um byggingarleyfi að Bleikjulæk 45-51, Selfossi. Umsækjandi: Jarlhettur ehf.
Samþykkt með fyrirvara um að brugðist verði við athugasemdum.
14.5. 1605020 - Umsókn um byggingarleyfi að Dranghólum 49,Selfossi. Umsækjandi: Þór Líni Sævarsson.
Samþykkt.
14.6. 1605005 - Endurnýjun á umsókn um byggingarleyfi að Austurási, 801 Selfoss. Umsækjandi: Haukur Baldvinsson.
Frestað og óskað er eftir fullnægjandi teikningum.
14.7. 1508185 - Umsókn um byggingarleyfi fyrir sólskála að Miðtúni 4, Selfossi. Umsækjandi: Guðrún Th. Guðmundsdóttir
Samþykkt að grenndarkynna erindið fyrir íbúum Miðtúns 2, 3 og 5 og Ártúns 1 og 3.
14.8. 1604257 - Umsókn um breytta notkun á rými að Eyravegi 23. Umsækjandi: Hamragil ehf.
Samþykkt með fyrirvara um að fullnægjandi teikningar og samþykki meðeigenda berist.
14.9. 1605007 - Fyrirspurn um byggingu sólstofu að Háeyrarvöllum , Eyrarbakka: Fyrirspyrjandi Sandra Sævarsdóttir
Óskað er eftir samþykki meðeiganda og fullnægjandi teikningum til grenndarkynningar.
14.10. 1605018 - Fyrirspurn um opnun milli iðnaðarbila að Hellismýri 12. Fyrirspyrjandi: Árni Laugdal
Samþykkt með fyrirvara um skriflegt samþykki beggja eigenda.
14.11. 1604209 - Óskað er umsagnar um rekstrarleyfi fyrir gististað í flokki II(íbúðir) að Jaðri 6, Selfossi. Umsagnaraðili: Sýslumaðurinn á Suðurlandi
Samþykkt að veita jákvæða umsögn.
14.12. 1604208 - Óskað er umsagnar um reksrarleyfi fyrir gististað í flokki II(íbúðir) að Tjarnarmóa 2, Selfossi. Umsagnaraðili: Sýslumaðurinn á Suðurlandi
Óskað eftir samþykki meðeiganda.
14.13. 1603240 - Óskað er umsagnar um reksrarleyfi fyrir gististað í flokki I(heimagisting) að Tryggvagötu 5, Selfossi. Umsagnaraðili: Sýslumaðurinn á Suðurlandi.
Óskað eftir samþykki meðeigenda.
15. 1605080 - Skipulagsskilmálar um skammtímagistingu
Nefndin telur rétt að yfirfara hvaða skilmála sé unnt að setja í skipulag til að takmarka skammtímaútleigu á íbúðarhúsnæði.
Fundargerð lesin upp og fundi slitið kl: 10:10
Ásta Stefánsdóttir Magnús Gíslason
Gísli Á. Jónsson Guðlaug Einarsdóttir
Ragnar Geir Brynjólfsson Bárður Guðmundsson
Ástgeir Rúnar Sigmarsson
           

Þetta vefsvæði byggir á Eplica