Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


8.9.2016

26. fundur skipulags- og byggingarnefndar

26. fundur skipulags- og byggingarnefndar Árborgar, kjörtímabilið 2014-2018, haldinn miðvikudaginn 7. september 2016 að Austurvegi 67, Selfossi, kl. 08:10.  Mætt: Ásta Stefánsdóttir, formaður, D-lista, Magnús Gíslason, nefndarmaður, D-lista, Gísli Á. Jónsson, nefndarmaður, D-lista, Ragnar Geir Brynjólfsson, nefndarmaður, B-lista, Bárður Guðmundsson, skipulags- og byggingarfulltrúi, Ástgeir Rúnar Sigmarsson, aðstoðarbyggingarfulltrúi.   Ástgeir Rúnar Sigmarsson ritaði fundargerð. Dagskrá: 
Almenn afgreiðslumál
1. 1609002 - Umsókn um byggingarleyfi fyrir nýjum undirstöðum undir rafstýrt hlið að Austurvegi 65, Selfossi. Umsækjandi: Auðhumla svf
Samþykkt.
2. 1609001 - Fyrirspurn um breytingu á byggingarmagni að Eyrarlæk 1-7, Selfossi. Fyrirspyrjandi: Guðjón Þórisson
Hafnað, stutt er síðan heildstæð deiluskipulagsbreyting var unnin á hverfinu þar sem byggingarmagn var aukið talsvert. Óæskilegt þykir að auka það meira.
3. 1608002 - Fyrirspurn um breytingar á lóðinni Lyngmóa 9, Selfossi, áður á fundi 10. ágúst sl.  Fyrirspyrjendur: Einar Haraldsson og Lilja Böðvarsdóttir
Nefndin getur fallist á stækkun lóðarinnar um 3 metra. Formanni nefndarinnar og skipulags- og byggingarfulltrúa falið að ræða við fyrirspyrjanda um kaup eða leigu lóðarinnar.
4. 1608178 - Umsókn um lóðina Hulduhól 6-10, Eyrarbakka. Umsækjendur: Emil Ingi Haraldsson, Anna M Ólafsdóttir Briem og Ólafur Jón Briem
Samþykkt að úthluta lóðinni.
5. 1608063 - Umsókn um lóðina Hulduhól 13, Eyrarbakka. Umsækjandi: Víglundur Guðmundsson
Samþykkt að úthluta lóðinni.
6. 1607079 - Umsókn um lóð undir dreifistöð við Hafnargötu á Stokkseyri, áður á fundi 10. ágúst sl. Umsækjandi: HS veitur hf
Samþykkt að úthluta lóð til HS veitna vestan við Hafnargötu 9 á lóð gamla kaupfélagsins.
7. 1608026 - Umsókn um stöðuleyfi fyrir geymslugám að Eyrarbraut 21, Stokkseyri, áður á fundi 10. ágúst sl. Umsækjandi: Guðjón Bjarnason
Samþykkt til sex mánaða.
8. 1608047 - Fyrirspurn um lóð í Hrísholti á Selfossi. Fyrirspyrjandi: Ásgeir Valdimarsson
Hafnað þar sem ekki er um skipulagða lóð að ræða samkvæmt gildandi skipulagi.
9. 1511201 - Áform um framkvæmdir að Eyrargötu 16b, Eyrarbakka. Fyrirspyrjandi: Att Arkitektar ehf
Samþykkt að heimila endurgerð Frambæjarhúss, einnig lagt til að fyrirhuguð gesta- og verkstæðisbygging verði grenndarkynnt.
10. 1601304 - Tillaga að breyttu deiliskipulagi að Byggðarhorni 9, tillagan hefur verið auglýst og athugasemdir borist.
Afgreiðslu frestað og formanni skipulags- og byggingarnefndar, skipulags- og byggingarfulltrúa og bæjarlögmanni falið að leggja fram tillögu að svörum við athugasemdum.
11. 1609002F - Afgreiðslunefnd byggingarfulltrúa
11.1. 1608183 - Óskað er umsagnar um rekstrarleyfi fyrir endurnýjun á veitingastað í flokki I, Bókakaffið, Austurvegi 22, Selfossi. Beiðni: Sýslumaðurinn á Suðurlandi
Samþykkt að veita jákvæða umsögn.
11.2. 1608164 - Óskað er umsagnar um rekstrarleyfi fyrir gististað í flokki I (heimagisting) að Réttarholti 14, Selfossi. Beiðni: Sýslumaðurinn á Suðurlandi
Samþykkt að veita jákvæða umsögn.
11.3. 1605267 - Óskað er umsagnar um rekstrarleyfi fyrir gististað í flokki I (heimagisting) Símstöðin Austurvegi 26, Selfossi, áður á fundi 1. júní sl. Beiðni: Sýslumaðurinn á Suðurlandi
Samþykkt að veita jákvæða umsögn.
11.4. 1607035 - Óskað er umsagnar um rekstrarleyfi fyrir gististað í flokki I (heimagisting)að Kirkjuvegi 21, Selfossi. Beiðni: Sýslumaðurinn á Suðurlandi
Samþykkt að veita jákvæða umsögn.
11.5. 1609020 - Umsókn um byggingarleyfi fyrir raðhúsi að Gráhellu 35-51, Selfossi. Umsækjandi: North - Team Inverst
Samþykkt með fyrirvara um að brugðist verði við athugasemdum.
11.6. 1609019 - Umsókn um byggingarleyfi fyrir raðhúsi að Gráhellu 54-70, Selfossi. Umsækjandi: North - Team - Inverst
Samþykkt með fyrirvara um að brugðist verði við athugasemdum.
11.7. 1609018 - Umsókn um byggingarleyfi fyrir raðhúsi að Gráhellu 36-52, Selfossi. Umsækjandi: North - Team - Inverst
Samþykkt með fyrirvara um að brugðist verði við athugasemdum.
11.8. 1609016 - Umsókn um byggingarleyfi fyrir parhúsi að Seljalandi 1-3, Selfossi. Umsækjandi: Hannes Þór ehf
Samþykkt með fyrirvara um að brugðist verði við athugasemdum.
11.9. 1609017 - Umsókn um byggingarleyfi fyrir parhúsi að Seljalandi 5-7, Selfossi. Umsækjandi: Hannes Þór ehf
Samþykkt með fyrirvara um að brugðist verði við athugasemdum.
11.10. 1609021 - Umsókn um byggingarleyfi fyrir einbýlishúsi og hesthúsi að Suðurbraut 11, Tjarnabyggð. Umsækjendur: Helga María Hafþórsdóttir og Karen Sif Kristjánsdóttir
Samþykkt með fyrirvara um að brugðist verði við athugasemdum.
11.11. 1608177 - Umsókn um byggingarleyfi fyrir parhúsi að Vallarlandi 2-4, Selfossi. Umsækjandi: Kvistfell ehf
Samþykkt með fyrirvara um að brugðist verði við athugasemdum.
11.12. 1609023 - Fyrirspurn um breytingu á hluta bílskúrs að Tröllhólum 23, Selfossi. Fyrirspyrjandi: Sveinn Skorri Skarphéðinsson
Óskað eftir fullgildum aðaluppdráttum.
11.13. 1609022 - Umsókn um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu að Eyrarlæk 8, Selfossi. Umsækjandi: Guðni Gestur Pálmason
Samþykkt með fyrirvara um að brugðist verði við athugasemdum.
11.14. 1609032 - Umsókn um byggingarleyfi fyrir raðhúsi að Ólafsvöllum 13-19, Stokkseyri. Umsækjandi: Erlingsson ehf
Samþykkt með fyrirvara um að brugðist verði við athugasemdum.
11.15. 1609040 - Umsókn um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við flugskýli. Umsækjandi: Einar P Elíasson
Frestað og óskað eftir umsögn eldvarnareftirlits.
  Fundargerð lesin upp og fundi slitið kl: 09:30 Ásta Stefánsdóttir                                          Magnús Gíslason Gísli Á. Jónsson                                             Ragnar Geir Brynjólfsson Bárður Guðmundsson                                    Ástgeir Rúnar Sigmarsson Kristján Júlíusson

Þetta vefsvæði byggir á Eplica