8.3.2019

27. fundur bæjarráðs

27. fundur bæjarráðs Árborgar, kjörtímabilið 2018-2022 haldinn fimmtudaginn 7. mars 2019 í Setri Egils, Ráðhúsi Árborgar, Austurvegi 2, Selfossi, kl. 17:00  Mætt: Eggert Valur Guðmundsson, formaður, S-lista Sigurjón Vídalín Guðmundsson, bæjarfulltrúi, Á-lista Gunnar Egilsson, bæjarfulltrúi, D-lista Gísli Halldór Halldórsson, bæjarstjóri Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 1901291 - Landsþing Sambandsins 2019 1-1901291
  Upplýsingar frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga um XXXIII. landsþing sem verður föstudaginn 29. mars.
  Lagt fram til kynningar.
     
2. 1902292 - Áskorun - heitur matur í hádeginu í Grænumörk 2-1902292
  Áskorun frá Félagi eldri borgara á Selfossi, dags. 21. febrúar sl. um að boðið verði upp á heitan mat í hádeginu í Grænumörkinni.
  Bæjarráð óskar upplýsinga frá Fjölskyldusviði um kosti þess og galla að bjóða upp á heitan mat í hádeginu í Grænumörk, auk þess sem lagt verði mat á kostnað og ávinning af þeirri tilhögun.
     
3. 1705144 - Áskorun - hjúkrunarheimili og hjúkrunarmál eldri borgara á Selfossi 3-1705144
  Áskorun frá aðalfundi Félags eldri borgara Selfossi sem haldinn var 21. febrúar sl. um að flýta sem mest byggingu fyrirhugaðs hjúkrunarheimilis á Selfossi.
  Bæjarráð leggur ríka áherslu á að framkvæmdum við nýtt hjúkrunarheimili seinki ekki frekar en orðið er og þakkar aðalfundi Félags eldri borgara á Selfossi fyrir hvatninguna.
     
4. 1902298 - Umsögn - tillaga til þingsályktunar um endurskoðun á lagaumhverfi er varðar uppkaup á landi 4-1902298
  Erindi frá allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis, dags. 27. febrúar, þar sem óskað er eftir umsögn um tillögu til þingsályktunar um endurskoðun á lagaumhverfi er varðar uppkaup á landi, mál 184.
  Lagt fram til kynningar.
     
5. 1903018 - Þátttaka sveitarfélaga í verkefni um íbúasamráð 5-1903018
  Erindi frá Sambandi íslenska sveitarfélaga, dags. 28. febrúar, þar sem sveitarfélög eru hvött til að sækja um að taka þátt í íbúðasamráðsverkefni.
  Lagt fram til kynningar.
     
6. 1902054 - Stofnun starfshóps um forgangsröðun íþróttamannvirkja í Sveitarf. Árborg
  Á fundi bæjarstjórnar 27. febrúar sl. lagði forseti til að vísa stofnun starfshóps sem vinni á áfram að þarfagreiningu og forgangsröðun íþróttamannvirkja í Sveitarfélaginu Árborg til bæjarráðs til nánari útfærslu.
  Bæjarráð skipar í nefndina fjóra fulltrúa bæjarstjórnar og eru þeir eftirfarandi: Guðbjörg Jónsdóttir, formaður íþrótta- og menningarnefndar, Sigurjón Vídalín Guðmundsson, formaður skipulags- og byggingarnefndar, Kjartan Björnsson, bæjarfulltrúi, Brynhildur Jónsdóttir, bæjarfulltrúi. Bragi Bjarnason, frístunda- og menningarfulltrúi verði starfsmaður hópsins. Drög að erindisbréfi verði lögð fram á fyrsta fundi starfshópsins.
     
7. 1903014 - Kaup á húsnæði við Búðarstíg 22 Eyrarbakka 7-1903014
  Erindi frá Héraðsnefnd Árnessýslu bs., dagsett 3. mars, þar sem óskað er eftir að tekið verði fyrir kauptilboð og endurbætur á fasteigninni við Búðarstíg 22 á Eyrarbakka fyrir Byggðasafn Árnesinga. Framkvæmdastjórn HNÁ og stjórn BSÁ óska eftir heimild frá aðildarsveitarfélögum HNÁ til að ganga frá kaupum á fasteigninni Búðarstígur 22 á Eyrarbakka og að kaupin og endurbætur á húseigninni sem farið verði í á árinu 2019 verði fjármögnuð með lántöku frá Lánasjóði sveitarfélaga allt að 100 milljónum króna.
  Bæjarráð fagnar því að húsnæðismál Byggðasafns Árnesinga komist með þessum hætti í ásættanlegt horf til framtíðar. Með kaupunum gefast ný tækifæri til að styrkja og efla safnastarfsemi á Suðurlandi. Bæjarráð samþykkir erindið og vísar því áfram til fullnaðarafgreiðslu í bæjarstjórn þar sem staðfest verði að Sveitarfélagið Árborg veiti ábyrgð fyrir lántöku, í samræmi við sína eignarhlutdeild, vegna kaupa fasteignar fyrir Byggðasafn Árnesinga. Heildarlántaka Byggðasafns Árnesinga verður allt að 100 m.kr., samkvæmt upplýsingum frá framkvæmdastjórn Héraðsnefndar Árnesinga.
     
8. 1902276 - Beiðni um kaup á rafmagnsbifreið fyrir tölvudeild 8-1902276
  Á 26. fundi bæjarráðs var óskað eftir frekari upplýsingum um verð og gæði vegna bílakaupa tölvudeildar. Jafnframt er óskað eftir að drög að viðauka vegna kaupanna verði lögð fyrir næsta fund bæjarráðs.
  Bæjarráð samþykkir kaupin. Kostnaður 1.500.000 kr. bókast á málaflokk 34-150 Þjónustumiðstöð - fjárfesting. Útgjöldum er mætt með lækkun á handbæru fé.
     
9. 1903021 - Endurskoðun samgönguáætlunar Suðurlands 2019-2028 9-1903021
  Erindi frá samgöngunefnd SASS, dags. 4. mars, þar sem óskað er eftir upplýsingum frá sveitarstjórnum um helstu forgangsverkefni í samgöngumálum 2019-2028. Skilafrestur er til 15. mars nk.
  Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna drög að svörum fyrir hönd Sveitarfélagsins Árborgar og leggja fyrir á næsta fundi bæjarráðs.
     
10. 1810218 - Fulltrúar í hverfisráð Árborgar - Eyrarbakka 10-1810218
  Bæjarráð samþykkir eftirfarandi fulltrúa í hverfisráð Árborgar Eyrarbakka: Aðalmaður verður Sigmar Ólafsson Varamaður verður Esther H. Guðmundsdóttir
     
11. 1812039 - Hugmyndir um frístundamiðstöð á Selfossi
  Niðurstaða ástandsskoðunar - Lagt fram á fundinum.
  Lagt fram til kynningar.
     
12. 1903028 - Afsal fyrir lóðinni Hafnartúni landnr. 162967 12-1903028
  Bæjarráð samþykkir afsalið fyrir hönd Sveitarfélagsins Árborgar.
     
13. 1801287 - Niðurstaða Héraðsdóms Suðurlands
  Niðurstaða dóms, dags. 4. mars, í máli á hendur Sveitarfélaginu Árborg og Heilbrigðiseftirlits Suðurlands. - Lagt fram á fundinum.
  Lagt fram til kynningar.
     
Fundargerðir til kynningar
14.   1902257 - Fundargerðir Veiðifélags Árnesinga 2019 14-1902257 - Fyrri hluti 14-1902257 - Seinni hluti
  Fundargerð stjórnar haldinn 19. febrúar með upplýsingum um að aðalfundur félagsins verði 28. mars nk.
  Lagt fram til kynningar.
     
15. 1901335 - Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 2019 15-1901335
  868. fundur haldinn 22. febrúar
  Lagt fram til kynningar.
     
16. 1901272 - Fundargerðir heilbrigðisnefndar Suðurlands 2019 16-1901272
  194. fundur haldinn 27. febrúar
  Lagt fram til kynningar.
     
Fundargerð lesin upp og fundi slitið kl: 18:05  
Eggert Valur Guðmundsson   Sigurjón Vídalín Guðmundsson
Gunnar Egilsson   Gísli Halldór Halldórsson

Þetta vefsvæði byggir á Eplica