Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


20.12.2012

27. fundur fræðslunefndar

27. fundur fræðslunefndar Árborgar, kjörtímabilið 2010-2014, haldinn fimmtudaginn 13. desember 2012  í Norðursal, Ráðhúsi Árborgar, Austurvegi 2, Selfossi, kl. 17:15. 

Mætt: Sandra Dís Hafþórsdóttir, formaður, D-lista, Grímur Arnarson, varaformaður, D-lista, Brynhildur Jónsdóttir, nefndarmaður, D-lista, Arna Ír Gunnarsdóttir, nefndarmaður, S-lista, Andrés Rúnar Ingason, nefndarmaður, V-lista, Guðbjartur Ólason, fulltrúi skólastjóra, Eygló Aðalsteinsdóttir, fulltrúi leikskólastjóra, Guðrún Thorsteinsson, fulltrúi kennara, Málfríður Garðarsdóttir, fulltrúi foreldra grunnskóla, Gunnar Már Kristjánsson, fulltrúi foreldra leikskóla, Ingibjörg Harpa Sævarsdóttir, fulltrúi starfsmanna, Þorsteinn Hjartarson, fræðslustjóri. 
 
Dagskrá: 

Erindi til kynningar

1.

1208041 - Vinnuhópur um sérfræðiþjónustu leik- og grunnskóla í Árborg

 

Trausti Þorsteinsson og Gunnar Gíslason kynntu skýrslu um sérfræðiþjónustu skóla í Árborg. Undir þessum dagskrárlið sátu fundinn fulltrúar í vinnuhópi um sérfræðiþjónustu, þau Guðrún Þóranna Jónsdóttir, Lísbet Nílsdóttir, Magnús J. Magnússon, Sigríður Ásdís Jónsdóttir og Þorsteinn Hjartarson, jafnframt bæjarfulltrúarnir Gunnar Egilsson, Kjartan Björnsson og Ásta Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri sveitarfélagsins. Fræðslunefnd þakkar þeim Trausta og Gunnari fyrir góða kynningu, skýrslu og starf í þágu fræðslumála í Árborg. Einnig fá fulltrúar í vinnuhópnum bestu þakkir.

Fundargerðir vinnuhóps frá 9. nóvember, 27. nóvember og 5. desember 2012 til kynningar. Sérfræðiþjónustan verður aftur tekin á dagskrá í fræðslunefnd fimmtudaginn 10. janúar nk.

 

 

   

2.

1109098 - Skólastefna Sveitarfélagsins Árborgar

 

Fundargerð stýrihóps frá 12. nóvember 2012 til kynningar. Einnig drög að skólastefnu frá 28. nóvember 2012 og niðurstöður samráðs- og stefnumótunarfundar (28.11.2012).

Grímur Arnarson þurfti að yfirgefa fundinn kl. 19:14.

 

   

3.

1209131 - Fjárhagsáætlunargerð fyrir árið 2013

 

Minnisblað vegna fyrirspurnar á 26. fundi fræðslunefndar lagt fram til kynningar.

 

   

4.

 1101166 - Fundir leikskólastjóra, sérkennslustjóra og fræðslustjóra 2011-2012

 

Fundargerð frá 13. nóvember 2012 til kynningar.

 

   

5.

1201090 - Skólaráð Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri

 

Fundargerð (18) frá 26. nóvember 2012 til kynningar. Málefni Strætó rædd vegna barna sem búa á Eyrarbakka og Stokkseyri.

 

   

6.

1203219 - Skólaráð Vallaskóla 2012

 

Fundargerð frá 7. nóvember 2012 til kynningar.

 

   

7.

1201084 - Fundargerðir Skólaskrifstofu Suðurlands

 

Fundargerð (143) frá 17. október 2012 og fundargerð (144) frá 7. desember 2012 til kynningar.

 

   

 Fundargerð lesin upp og fundi slitið kl: 19:58 

Sandra Dís Hafþórsdóttir

 

Grímur Arnarson

Brynhildur Jónsdóttir

 

Arna Ír Gunnarsdóttir

Andrés Rúnar Ingason

 

Guðbjartur Ólason

Eygló Aðalsteinsdóttir

 

Guðrún Thorsteinsson

Málfríður Garðarsdóttir

 

Gunnar Már Kristjánsson

Ingibjörg Harpa Sævarsdóttir

 

Þorsteinn Hjartarson


Þetta vefsvæði byggir á Eplica